Rafíþróttir

BLAST forkeppnin: Dusty í úrslitin

Snorri Rafn Hallsson skrifar
Screen Shot 2022-11-22 at 08.23.56

Dusty sló Ármann út í 2 leikjum í gærkvöldi og mætir SAGA í kvöld í úrslitum BLAST forkeppninnar

Í þessari næst síðustu viðureign BLAST forkeppninar léku Dusty og Ármann upp á hvort liðið kæmist í úrslitin. Dusty stillti upp sínu hefðbundna liði með Detinate, EddezeNNN, StebbaC0C0, TH0R og B0nda innanborðs. Lið Ármanns var eilítið frábrugðið  þeim hópi sem leikið hefur í Ljósleiðaradeildinni í vetur en auk Vargs, Ofvirks og Hypers spila Brnr og Snowy nú með liðinu.

Leikur 1: Inferno

Dusty fór afar vel af stað í vörninni í fyrri hálfleik og vann hvorki meira né minna en fyrstu 9 lotur leiksins. Fremstur í flokki var TH0R á vappanum en EddezeNNN og Detinate létu sitt ekki eftir liggja. Ármann fann svo kraftinn undir lok hálfleiks og tókst að minnka muninn niður í 5 stig áður en hálfleiknum lauk.

Staða í hálfleik: Dusty 10 – 5 Ármann 

Aftur hafði Dusty betur í upphafslotum hálfleiks en Ármann minnkaði muninn örlítið á ný þegar bæði lið voru fullvopnuð. Eftir það skiptust liðin á lotum og Dusty vann því leikinn með forskotinu úr fyrri hálfleik.

Lokastaða: Dusty 16 – 11 Ármann

Dusty megin stóð TH0R sig best allra með 25 fellur og 3 aðstoðarskot, en Vargur bara höfuð og herðar yfir leikmenn Ármanns með 27 fellur og 5 aðstoðarskot.

Staðan í einvíginu eftir fyrsta leik var 1–0 fyrir Dusty.

Leikur 2: Mirage

Dusty hóf annan leik kvöldsins í sókn og krækti sér strax í fyrstu 3 lotur leiksins. Liðið hafði leikinn í höndum sér og tókst oftar en ekki að tengja saman nokkrar lotur í röð til að halda aftur af varnartilraunum og fjárhag Ármanns. Það var ekki fyrr en í blálokin sem Ármanni tókst að gera slíkt hið sama en þó liðið ynni síðustu þrjár loturnar hafði Dusty örugga forystu.

Staða í hálfleik: Dusty 9 – 6 Ármann

Enga veikleika var að finna á vörn Dusty í síðari hálfleik og þaut liðið fram úr Ármanni með því að vinna fyrstu 5 lotur hálfleiksins. Staðan var því 14–6 fyrir Dusty og brekkan brött fyrir Ármann. Ágætir tilburðir um miðjan hálfleikinn höfðu lítið að segja því stjörnuleikmennirnir Ofvirkur og Vargur höfði lítið látið á sér bera allan leikinn. Fjórföld fella frá TH0R gerði svo útslagið og tryggði Dusty ekki bara sigurinn í leiknum heldur líka í einvíginu.

Lokastaða: Dusty 16 – 10 Ármann

StebbiC0C0 var atkvæðamestur Dusty manna með 23 fellur og 2 aðstoðarskot á meðan Brnr dró vagn Ármanns með 27 fellum og 3 aðstoðarskotum. Dusty vann einvígið 2–0 og mætir SAGA í kvöld klukkan 20:00. Hægt er að fylgjast með leiknum á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands. Það lið sem ber sigur úr býtum tekur þátt í Pelajaat.com Nordic Masters keppninni næsta vor, en það er líka undankeppni fyrir BLAST Premier mótið.


Tengdar fréttir

BLAST forkeppnin: SAGA í úrslitin

Tveir leikir fóru fram í BLAST forkeppninni í gær og unnu SAGA og Dusty sína leiki gegn xatefanclub og Ármanni.

BLAST forkeppnin: Dusty sló Þór úr leik

Það var sannkölluð Counter Strike veisla þegar Blast forkeppnin hélt áfram í gærkvöldi og nú standa einungis 4 lið eftir, Dusty, Ármann, SAGA og xatefanclub.

BLAST forkeppnin farin af stað

12 íslensk lið taka þátt í forkeppninni, en Blast Premier mótið er eitt það allra skemmtilegasta í CS:GO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×