Lífið

Guðmundur í Víði bjó sér til fossnið við Elliðavatn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Húsið Víðivellir við Elliðavatn er núna umlukið háum trjágróðri sem Guðmundur ræktaði upp. Bátaskýlið til vinstri.
Húsið Víðivellir við Elliðavatn er núna umlukið háum trjágróðri sem Guðmundur ræktaði upp. Bátaskýlið til vinstri. Arnar Halldórsson

„Það blundaði alltaf í honum svo mikill bóndi. Hann hafði svo gaman af náttúrunni,“ segir Ólafur Kr. Guðmundsson, þegar hann útskýrir hversvegna faðir hans, Guðmundur Guðmundsson, forstjóri Trésmiðjunnar Víðis, valdi að byggja upp heimili fjölskyldunnar í sveit við Elliðavatn.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 segir Ólafur frá æskuárunum við Elliðavatn en það var árið 1961 sem Guðmundur og eiginkona hans, Ólafía Ólafsdóttir, byggðu sér hús við vatnið, sem þau nefndu Víðivelli. Þar ólu þau upp fimm syni og héldu einnig húsdýr framanaf.

Fjölskyldumynd frá árinu 1971.Úr einkasafni

Guðmundur í Víði var á þeim árum einn kunnasti iðnrekandi landsins. Það þótti aðdáunarvert að honum skyldi hafa tekist að byggja upp eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins með eitthundrað manns í vinnu þrátt fyrir að vera blindur.

Fossinn og lækurinn sem Guðmundur í Víði bjó til á lóð fjölskyldunnar. Grjótinu hlóð hann utan á bátaskýlið.Úr einkasafni

Örorkan kom heldur ekki í veg fyrir að hann ræktaði upp sælureit fjölskyldunnar með lystigarði þar sem áður var berangur með móa og melum. Þá smíðaði hann bátaskýli við vatnið sem hýsti einnig vatnsdælu.

„Pabbi vildi hafa árnið þannig að hann smíðaði foss hér og með dælu hérna niðri. Það var mikið mas oft að koma þessu í gang og láta fossinn ganga hér á sumrin. Svo lá pabbi hér í þessari kvos hér fyrir neðan undir blómabeði,“ segir Ólafur.

Ólafur Kr. Guðmundsson sýnir bátaskýlið. Þar inni var vatnsdælan.Arnar Halldórsson

Þátturinn Um land allt um Elliðavatn verður endursýndur á Stöð 2 í dag, sunnudag, klukkan 15:05. Einnig má nálgast hann á streymisveitunni Stöð 2+.

Hér má sjá fimm mínútna kafla úr þættinum þar sem Ólafur segir frá föður sínum og manngerða fossinum:

Síðari þátturinn um Elliðavatn og vatnasvið þess er á dagskrá Stöðvar 2 annaðkvöld, mánudagskvöld. Hér má sjá kynningarstiklu seinni þáttarins:


Tengdar fréttir

Fólk sem býr og starfar við Elliðavatn lýsir dásemdum útvistarperlunnar

„Það er alveg dásamlegt að vinna hérna. Þessi kyrrð og nánd við náttúruna. Þetta er ólýsanlegur vinnustaður. Þetta eru forréttindi að fá að vinna á þessum stað,“ segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, en skrifstofa félagsins er í Elliðavatnsbænum. Auður býr auk þess í Norðlingaholti, en hún segir það meðal lífsgæða hverfisins hvað það er nálægt Heiðmörk.

Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk

Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×