Viðskipti innlent

Vök Bat­hs hlutu Ný­sköpunar­verð­laun ferða­þjónustunnar

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Vök Baths er handhafi Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2022. Eliza Reid, forsetafrú og Bjarnheiður Hallsdóttur, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar ásamt Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Vök Baths og Ívari Ingimarssyni, stjórnarmanni hjá Vök Baths.
Vök Baths er handhafi Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2022. Eliza Reid, forsetafrú og Bjarnheiður Hallsdóttur, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar ásamt Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Vök Baths og Ívari Ingimarssyni, stjórnarmanni hjá Vök Baths. Aðsent/SAF/EÁ

Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar voru afhent í dag í nítjánda sinn en það voru Vök Baths á Egilsstöðum sem hlutu verðlaunin að þessu sinni. Eliza Reid afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Verðlaunin afhentu Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) á afmælisdegi félagsins. Í ár bárust SAF fjórtán tilnefningar til verðlaunanna. Ásamt Vök Baths hlutu Hopp Reykjavík og Höldur – Bílaleiga Akureyrar Nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar fyrir verkefni sitt „Hopp deilibílar.“

Verðlaunin afhenda SAF fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið með þeim að hvetja til frumkvöðla og fyrirtæki áfram í nýsköpun innan ferðaþjónustunnar.

Hopp deilibílar hlutu nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar 2022. Eyþór Máni Steinarsson, Eiríkur Heiðar Nilsson og Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir frá Hopp Reykjavík og Viktor Guðjónsson, Bergþór Karlsson og Pálmi Viðar Snorrason frá Höldi – Bílaleigu Akureyrar.Aðsent/SAF/EÁ

Fram kemur í fréttatilkynningu vegna verðlaunanna að Vök Baths sé ánægjuleg nýjung fyrir Austurland sem og ferðamenn sem landshlutann heimsækja.

„Hönnun staðarins endurspeglar þema náttúrunnar í kring og leikur lerki þar lykilhlutverk sem allt var sótt í Hallormsstaðaskóg, elsta þjóðskóg Íslands. Mikil áhersla er lögð á að sækja í staðbundin hráefni þar sem unnt er. Má þar nefna lífrænt ræktaðar jurtir frá Vallanesi á tebarnum og bjóra sem framleiddir eru í samstarfi við brugghúsið Austra,“ segir í tilkynningunni.

Vök Baths samanstanda af tveimur heitum sjóndeildarlaugum, tveimur heitum laugum til viðbótar, vaðlaug og eimbaði ásamt fleiru. Böðin eru staðsett á bakka Urriðavatns við Egilsstaði.

Hér má sjá yfirlitsmynd af aðstöðu Vök Baths.Facebook/Vök Baths

Haft er eftir Aðalheiði Ósk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Vök Baths þar sem hún segir verðlaunin veita fyrirtækinu innblástur til þess að gera betur.

„Vök Baths er mjög gott dæmi um mikilvægi þess að við hugsum ekki aðeins um það að dreifa ferðamönnum um landið heldur að dreifa fjárfestingum og uppbyggingu um landið. Fjárfesting og uppbygging sem þessi laðar ferðamenn hvaðanæva að til þess að heimsækja Austurland. Þeir eru líklegri til að staldra við og nýta þá þjónustu sem þar er í boði og kynna sér hvað samfélagið á Austurlandi hefur upp á að bjóða. Það að hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar veitir okkur góðan byr til að gera enn betur.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×