Neytendur

Af­sláttar­dagar alltaf að stækka: „Enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Andrés Magnússon segir mikilvægt að hlúa að íslenskri verslun
Andrés Magnússon segir mikilvægt að hlúa að íslenskri verslun

Einn stærsti dagur afsláttardagur ársins er í dag, svokallaður Singles day eða Dagur einhleypra. Sífellt fleiri landsmenn nýta sér alþjóðlega afsláttardaga í nóvember til að hefja og jafnvel klára jólainnkaup. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir mikilvægt að hafa umhverfisáhrif í huga þegar verslað sé af erlendum netverslunum.

Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir þessa stóru afsláttardaga hafa komið mjög sterka inn í verslun, ekki síst jólaverslun, undanfarin ár.

„Þetta hefur farið stigvaxandi síðustu fimm til sex árin. í fyrra var hlutfall af kortaveltu á þessum degi í nóvember, ellefu til tólf prósent. Það er enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr hvað það varðar,“ segir Andrés. Hann segir jafnframt að jólaverslun sem að löngum hluta hafi að mestu farið fram í desember, hafi í auknum mæli verið að færast yfir á þessa afsláttardaga.

„Enda geta neytendur í gert frábær kaup og hafa nýtt sér það í ríkum mæli. Ekki bara hér heldur líka í löndum sem við berum okkur saman við.“

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.

Verslun „gífurlega mikilvæg fyrir hagkerfið“

Andrés hefur ekki áhyggjur af því að íslendingar séu auknum mæli að panta af erlendum verslunum, og því að það gæti komið illa niður á íslenskum verslunum.

„Innlend verslun er og hefur alltaf verið í mikilli samkeppni. Hins vegar er mikilvægt að menn hafi umhverfisáhrif í huga þegar verslað er í ríkum mæli af erlendum netverslunum,“ segir Andrés. Hann leggur áherslu á að íslensk verslun skipti gífurlega miklu máli fyrir hagkerfið.

„Um tuttugu og fimm þúsund manns hafa atvinnu af verslun á ísland. Þetta er ein mikilvægasta atvinnugrein okkar. Það skiptir gífurlegu máli að það sé vel hlúð að greininni sem slíkri. Bæði vegna þess hversu mikilvæg hún er hagkerfinu, en ekki síður hvað hún veitir stórum hluta fólks atvinnu.“

Öðru hvoru kemur upp sú umræða að fyrirtæki hækki verð á vörum sínum fyrir afsláttardaga og bjóði svo afslátt. Andrés gefur lítið fyrir slíkt tal.

„Ég hef bara aldrei heyrt um það.“


Tengdar fréttir

Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun

Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×