Frá þessu segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Harpa hafi víðtæka reynslu af mannauðsmálum, stefnumótun, stjórnun og rekstri.
„Harpa var um árabil mannauðsstjóri Deloitte sem og yfirmaður þjónustudeildar Deloitte. Hún var framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition og síðar mannauðsstjóri Lyfjastofnunar. Þar á undan starfaði hún um árabil sem forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Eimskip, Þyrpingu, Atorku og Deloitte.
Harpa hefur einnig reynslu af ráðgjöf og stjórnendamarkþjálfun bæði hjá hinu opinbera sem og á almennum markaði og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnarsetu.
Harpa er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc.-gráðu í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri,“ segir í tilkynningunni.