Innlent

Segir málin mikið fleiri en hún hafi haft grun um

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Anna Dóra Sæþórsdóttir hefur sagt af sér sem formaður Ferðafélags Íslands.
Anna Dóra Sæþórsdóttir hefur sagt af sér sem formaður Ferðafélags Íslands. Kristinn Ingvarsson

Anna Dóra Sæþórsdóttir, fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands, segir að mál sem tengist kynferðislegri áreitni innan félagsins séu mikið fleiri en hana hafi haft grun um.

Þetta kemur fram í viðtali við Önnu Dóru í helgarblaði Fréttablaðsins.

Ólga innan Ferðafélagsins

Ásakanir hafa gengið á víxl á milli Önnu og stjórnar Ferðafélags Íslands eftir að hún sagði af sér sem forseti félagsins í síðasta mánuði. Hún lýsti meðal annars mikilli óeiningu milli sín og stjórnarinnar, sakaði hana um að vilja þagga niður atvik sem sneru að kynferðislegri áreitni innan félagsins og því að Tómas Guðbjartsson, læknir og stjórnarmaður, hafi barist harkalega fyrir því að Helgi Jóhannsson lögmaður og fyrrverandi stjórnarmaður, kæmi aftur til starfa fyrir félagið. Tómas hefur hafnað því alfarið.

Sigrún Valbergsdóttir, nýr forseti FÍ, sakaði Önnu Dóru á móti um ólýðræðisleg vinnubrögð og að hafa reynt að skipta um framkvæmdastjóra án samráðs við stjórnina. Ýjaði hún að því að Anna Dóra hefði sagt af sér vegna yfirvofandi vantrauststillögu stjórnar á hana. Samskiptavandi hafi verið tilkominn vegna stjórnunarhátta Önnur Dóru.

Segir engan vilja innan stjórnar til að taka á málunum

Í viðtalinu í Fréttablaðinu fer Anna Dóra yfir sína hlið málsins þar sem hún lýsir erfiðu sambandi við Pál Guðmundsson framkvæmdastjóra félagsins og stjórn félagsins. Lítill vilji hafi verið á því að taka á málum sem tengdust kynferðislegu ofbeldi eða áreitni innan félagsins.

„Þá áttaði ég mig á því að allt sem færi á milli mín og framkvæmdastjórans læki beint til stjórnar og það væri enginn vilji innan stjórnar til að taka á málum af þessum toga, alla vega ekki ef stjórnarfólk þekkti viðkomandi einstakling.“ er haft eftir Önnu Dóru í viðtalinu.

Í viðtalinu kemur einnig fram að Anna Dóra að þau málefni sem hún hafi tekið á, varðandi kynferðislega áreitni, hafi greinilega eingöngu verið toppurinn á ísjakanum.

„Þau málefni sem ég hafði tekið á, varðandi kynferðislega áreitni, voru greinilega bara toppurinn á ísjakanum. Það hafa konur haft samband við mig sem hafa lent í slíku, sumar létu félagið vita án þess að tekið væri á því en aðrar treystu sér ekki. Málin eru mikið fleiri en ég hafði grun um og sömu nöfnin dúkka upp aftur og aftur.“

Lesa má helgarviðtal Fréttablaðsins hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×