Sigur SAGA aldrei í hættu með vel spilandi WZRD innanborðs

Snorri Rafn Hallsson skrifar
wzrd

Leikurinn fór fram í Ancient og þrjár fellur frá Eika47 skiluðu Fylki sigri í hnífalotunni. Fylkir byrjaði því í vörn en beitt sókn SAGA endaði með sigri þeirra í skammbyssulotunni. SAGA átti greiða leið inn á sprengjusvæðin og náði snemma góðu forskoti.

Stigalausir um miðbik hálfleiksins reyndu Fylkismenn að breyta til og leika með tvo vappa samtímis en það skilaði þeim engu. SAGA náði sprengjunni niður í hverri einustu lotu, nappaði fríum vopnum af vængbrotnum Fylkismönnum sem náðu sér ekki í stig fyrr en í tíundu lotu. Allir leikmenn SAGA hittu vel og léku vel af hvorum öðrum, Zerq sérstaklega í upphafi leiks en WZRD eftir því sem leið á.

Hálfleiknum lauk með þrefaldri fellu frá ADHD og forskotið inn í síðari hálfleik ekki af verri endanum.

Staða í hálfleik: SAGA 12 – 3 Fylkir

Fylkir sótti hratt á B svæðið í skammbyssulotunni þar sem atkvæðamestu leikmenn liðsins, Snær og Brnr vörðu sprengjuna vel. Leikar höfðu snúist, SAGA komin í vandræði og bæði opnanir og lotur farnar að falla með Fylki.

Eftir 6 lotu runu þar sem SAGA hafði reynt að fara bæði hratt og hægt án árangurs náðu þeir loks í sín fyrstu stig í síðari hálfleik og hlutirnir farnir að ganga upp. Aftur lokaði ADHD síðustu lotunni og sigurinn fór til SAGA.

Lokastaða: SAGA 16 – 8 Fylkir

Næstu leikir liðanna:

  • Breiðablik – SAGA, þriðjudaginn 25/10, klukkan 20:30.
  • Fylkir – Viðstöðu, fimmtudaginn 27/10, klukkan 21:30.

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

TripleG trylltur í háloftunum

LAVA og SAGA voru jöfn við miðju deildarinnar fyrir leikinn í gærkvöldi en sigurliðið gat skotið sér upp í 2.-4. sæti.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira