Viðskipti erlent

Ný Ip­hone-tækni ruglar rússí­bana­ferð saman við bíl­slys

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það gæti verið nóg að gera hjá 911 í Bandaríkjunum ef allir þessir rússíbanagestir eru með nýjustu gerð Iphone-síma.
Það gæti verið nóg að gera hjá 911 í Bandaríkjunum ef allir þessir rússíbanagestir eru með nýjustu gerð Iphone-síma. Paul Broben/Getty Images

Svo virðist sem að ný tækni sem kynnt var til sögunnar með nýjustu gerð Iphone-síma bandaríska tæknirisans Apple geti ruglað rússíbanaferð saman við bílslys.

Minnst sex dæmi er um að sjálfvirkt kerfi nýjustu gerðar Iphone-síma Apple hafi hringt í bandarísku neyðarlínuna þar sem kerfið ruglar saman rússíbanaferð eigandans við bílslys.

Stutt er síðan Apple kynnti Iphone 14 til leiks. Á meðal nýjunga símans er sjálfvirkt kerfi sem á að nema hvort að eigandi símans hafi lent í bílslysi. Er kerfið hannað til að hringja sjálft í 911, bandarísku neyðarlínuna.

Kerfið virkar þannig að þegar það nemur óeðlilegar hreyfingar kemur upp viðvörun á símann í tuttugu sekúndur, auk þess sem að nokkuð hátt viðvörunarhljóð reynist. Hafi eigandinn ekki lent í bílslysi hefur hann því glugga til að koma í veg fyrir að síminn hringi í neyðarlínuna.

Óvænt vandamál þessu tengt er hins vegar komið upp í skemmtigörðum víðs vegar um Bandaríkin. Þannig virðast snöggar og óvæntar hreyfingar rússíbana kveikja á kerfinu.

Þannig kemur fram í frétt Wall Street Journal að miðstöð Neyðarlínunnar í Warren-sýslu Ohio-ríkis hafi fengið minnst sex símtöl frá sjáfvirku kerfi Iphone-síma frá Kings Island skemmtigarðinum.

Sjá má dæmi um eitt af þessum símtölum í tístinu hér að neðan:

Þá kemur einnig fram að svipaða sögu sé að segja frá skemmtigarðinum Six Flags Great America í grennd við Chicago.

Svo virðist sem að eigendurnir verði ekki varir við viðvörunina frá símanum, enda ef til vill með hugann við eitthvað annað en símann í miðri rússíbanaferð.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×