Ravle og félagar í NÚ rúlluðu Þór upp í Nuke

Snorri Rafn Hallsson skrifar
ravle

Liðin mættust í hinu sígilda Nuke korti sem virðist aftur vera að taka Ljósleiðaradeildina yfir þetta tímabilið. Minidegreez krækti í hnífalotuna fyrir Þór sem byrjaði fyrir vikið í vörn og vann fyrstu tvær loturnar.

Leikurinn var jafn í upphafi þar sem liðin skiptust á lotum en fljótlega fór NÚ að sýna yfirburði sína í Nuke kortinu. Bl1ck, Ravle og CLVR voru allir atkvæðamiklir þegar NÚ tengdi saman fjölmargar lotur í sókninni. Oftar en ekki tókst þeim að koma sprengjunni fyrir og Þór átti í mestu vandræðum með að aftengja hana.

Staða í hálfleik: NÚ 10 – 5 Þór

Eftir 6 lotu runu í fyrri hálfleik lék NÚ sama leik aftur í þeim síðari til að hreinlega bursta Þórsara. Ravle raðaði inn fellunum í fallegum fléttum undir lipurri stjórn Bjarna. Þór einfaldlega stóðst ekki pressuna, urðu oft fámennir í byrjun lota og komust hvorki Dabbehhh né Minidegreez almennilega á skrið. Pandaz felldi þann síðarnefnda til að sigla sigrinum heim fyrir NÚ.

Lokastaða: NÚ 16 – 5 Þór

Þessi úrslit voru nokkuð óvænt en skiluðu sér í því að NÚ er komið í annað sæti deildarinnar á meðan Þór fellur niður í það fjórða. Liðin eru þó enn jöfn að stigum.

Næstu leikir liðanna:

  • Þór – Viðstöðu, fimmtudaginn 13/10, klukkan 19:30.
  • NÚ – Ármann, fimmtudaginn 13/10, klukkan 21:30.

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Zerq sigldi sigrinum heim

NÚ hafði unnið báða leiki sína í deildinni en með sigri gat SAGA laumað sér upp að hlið þeirri.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira