Rafíþróttir

3. umferð CS:GO lokið – Þór og Dusty á toppnum

Snorri Rafn Hallsson skrifar
team round 3 CSGO

3. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri Breiðabliks á Viðstöðu.

Leikir vikunnar

Þór 16 – 14 Fylkir

Þór lék í þriðja sinn í Ancient og voru þar algjörlega á heimavelli gegn Fylki. Liðið vann 9 lotur í röð og var Dabbehhh í fantaformi með 21 fellu í fyrri hálfleik. Fylkir saxaði á forskotið undir lokin þegar þeir róuðu leik sinn örlítið og Brnr fékk almennileg tækifæri.

Síðari hálfleikur var mun jafnari. Þór vann fyrstu tvær loturnar en átti svo afar erfitt með að verja sprengjuna frá aftengingum Fylkis. Trekk í trekk stillti Fylkir upp í stórgóðar endurtökur og hvorki gekk né rak hjá Þór. Fylkir var því einungis einni lotu frá því að jafna þegar Dabbehhh kláraði 30. lotuna með stæl, rauf 30 fellu múrinn og tryggði Þór stigin 2 fyrir leikinn. 

Ármann 3 – 16 Dusty

Dusty hreinlega slátraði liði Ármanns í Inferno á þriðjudaginn. Fyrsta lotan var glæsileg þar sem Vargur hafði betur gegn StebbaC0C0 og tryggði Ármanni sitt fyrsta stig í leiknum. Dusty vann aftur á móti 10 lotur í röð í fyrri hálfleiks þars sem StebbiC0C0 og Bóndi öttu kappi um hver felldi fleiri ísbirni. 

Dusty ofmetnaðist aldrei heldur lék öruggt og yfirvegað. Ármann náði aðeins einu stigi í síðari hálfleik og sigurinn því auðveldur og fljótlegur fyrir Dusty sem heldur toppsætinu fyrir vikið.

LAVA 16 – 14 TEN5ION

LAVA fór snemma framúr TEN5ION með sigri í fyrstu 6 lotunum en TEN5ION bætti um betur og tók 7 lotur í röð. Fyrri hálfleikur var þannig mjög kaflaskiptur þar sem Hugo fór fyrir þéttri vörn TEN5ION.

Í síðari hálfleik skiptust liðin á lotum, TEN5ION komst yfir 14–12 en með yfirveguðum endurtökum með Stalz í fararbroddi hindraði LAVA að sprengjur TEN5ION springju og vann LAVA því að lokum. 

NÚ 9 – 16 SAGA

SAGA náði snemma yfirhöndinni í leiknum þar sem NÚ tókst ekki að tengja saman lotur fyrr en undir lok fyrri hálfleiks. NÚ átti því afar erfitt uppdráttar og auk þess að vinna síðustu þrjar lotur fyrri hálfleiks tók SAGA líka fyrstu fjórar í þeim seinni.

Liðið fór hratt um kortið, hélt vopnum sínum og sótti beitt með Zerq fremstan í flokki en Skoon fylgdi fast á hæla hans og lét fellurnar telja.

Breiðablik 16 – 9 Viðstöðu

Flott tilþrif frá Furious, Sax og Viruz tryggðu Breiðablik þriggja lotu forskot í upphafi en með stórgóðum tímasetningum og hittni sneri lið Viðstöðu vörn í sókn og komst í 6–3. Fyrri hálfleikur var því jafn en kaflaskiptur og oft mátti litlu muna að lotur færu öðuvísi en þær gerðu.

Aðra sögu er þó að segja af síðari hálfleik. Hann hófst á 8 lotu runu hjá Breiðablik sem misstu varla mann og gat lið Viðstöðu litla viðspyrnu veitt. Blazter var öflugur í að skapa pláss fyrir liðsfélaga sína sem þeir nýttu því miður ekki sem skyldi. Með með ótrúlegri ninja-aftengingu til að toppa frábæran leik tryggði Furious Breiðabliki sín fyrstu stig í deildinni.

Staðan

Dusty og Þór tróna á toppnum sem einu tvö liðin sem unnið hafa alla þrjá leiki sína. Á eftir þeim koma SAGA, NÚ og Ármann sem nú þegar gera atlögu að toppbaráttunni með tvo sigra og eitt tap hvert.

Neðar á töflunni hafa Fylkir, Breiðablik og LAVA nælt sér í stig en lið TEN5ION og Viðstöðu sitja á botninum. Enn er ekki langt liðið á tímabilið og því má búast við miklum hreyfingum á næstunni.

Næstu leikir

4. umferð Ljósleiðaradeildarinnar fer fram dagana 4. og 6. október: 

  • Dusty – TEN5ION, þriðjudaginn 4/10, klukkan 19:30
  • Fylkir – Ármann, þriðjudaginn 4/10, klukkan 20:30
  • Breiðablik – LAVA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 19:30
  • NÚ – Þór, fimmtudaginn 6/10 klukkan 20:30
  • Viðstöðu – SAGA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 21:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Bóndi leiddi ísbjörninn til slátrunar

Síðari leikur gærkvöldins í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO var á milli Ármanns og Dusty en bæði lið voru taplaus fram að því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×