Innlent

Engin vind­mylla eftir í Þykkva­bæ

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ingvar Jóel Ingvarsson starfsmaður Hringrásar skar vindmylluna niður í dag.
Ingvar Jóel Ingvarsson starfsmaður Hringrásar skar vindmylluna niður í dag. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson

Eftirstandandi vindmyllan í Þykkvabæ var felld í dag, níu mánuðum eftir að fyrri myllan var sprengd niður. Verkið gekk mun hraðar fyrir sig en síðast enda ákveðið að hvíla sprengjurnar í þetta skiptið.

Þegar fréttastofa mætti í Þykkvabæ í Rangárþingi ytra rétt fyrir klukkan tvö í dag var búið að undirbúa fall vindmyllunnar og ráðgert að aðeins kortersvinnu þyrfti til viðbótar til að fella mylluna.

Eftir nokkra bið hófst vinnan en verklok frestuðust. Myllan féll ekki til jarðar. Áhorfendur biðu í ofvæni og vonuðust til þess eins að verkið gengi betur en þegar tvíburavindmylla þessarar var sprengd niður af sprengjusveit Landhelgisgæslunnar í byrjun árs en það verk tók átta klukkustundir og sex sprengingar.

„Ég held það hafi fyrst og fremst verið það að Landhelgisgæslan hafi viljað æfa sig og prófa sinn búnað og fékk þarna tækifæri til að gera það. Þetta var ágætt hjá okkur, þetta hafðist ágætlega,“ segir Sigmar Eðvardsson, einn eigenda Hringrásar sem sá um niðurrif myllunnar í dag. 

Rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis féll myllan eftir að búið var að skera aðeins meira í hana og tjakka hana upp öðru megin til að hjálpa þyngdaraflinu að koma henni til jarðar.

„Svo fór þetta ekki alveg eins og við ætluðum, við vorum búin að skera hana í rétta flóa og annað en vegna ofsalegs vinds hérna þá leitaði hún við að sitja í hælinn. Þannig að við urðum að bregða á það ráð að fá þennan tjakk til að vega upp á móti og þá gekk þetta en við vorum samt ekki nema klukkutíma og tuttugu mínútum of seinir,“ segir Ingvar Jóel Ingvarsson starfsmaður Hrinrásar.

Féll myllan alveg eins og þið gerðuð ráð fyrir?

„Jájá, og gerði það mjög tignarlega.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×