Rafíþróttir

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Ætla sér að verja titilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar spá því að Dusty muni verja titilinn í ár.
Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar spá því að Dusty muni verja titilinn í ár.

Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá Dusty fyrsta sæti deildarinnar á komadi tímabili og að liðið muni verja titil sinn frá seinasta tímabili.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO hefst með pompi og prakt næstkomandi þriðjudag og af því tilefni mun Vísir birta spá sem leikmenn deildarinnar settu saman fyrir tímabilið sem framundar er.

Dusty er spáð fyrsta sæti deildarinnar og gangi spáin eftir mun liðið verja titil sinn frá seinasta ári, þrátt fyrir það að búið sé að fjölga liðum í deildinni.

Einhverjar breytingar hafa verið gerðar á leikmannahóp Dusty, en þrátt fyrir það er þetta stórveldi í íslenskum rafíþróttum talið líklegast til árangurs á komandi tímabili. Liðið vann deildarkeppnina með átta stiga mun á seinasta tímabili og tryggði sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Stórmeistaramótinu í framhaldi af því.

Lið Dusty skipa þeir TH0R (Þorsteinn Friðfinnsson), EddezeNNN (Eðvarð Þór Heimisson), StebbiC0C0 (Stefán Ingi Guðjónsson), b0ndi (Páll Sindri Einarsson) og detinate (Hafþór Örn Pétursson).

Fyrsti leikur Dusty er gegn Breiðablik næstkomandi fimmtudag klukkan 21:30. Íslandsmeistararnir munu því hefja titilvörnina á því að loka fyrstu umferðinni gegn nýliðunum.

 Ljósleiðaradeildin hefst í kvöld, en útsending hefst klukkan 19:15 og verða tveir leikir spilarðir, kl 19:30 og 20:30. Á fimmtudögum verða svo þrír leikir spilaðir til að loka umferðinni og hefst útsending þá líka kl 19:15, en leiktímar eru 19:30, 20:30 og 21:30. Beinar útsendingar alltaf á Stöð 2 eSport og Twitch-rás RÍSÍ.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×