Viðskipti innlent

Gera ráð fyrir 6,2 milljónum í gegnum flug­völlinn á árinu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Búist er við að á sjöundu milljón farþega leggi leið sína um Keflavíkurflugvöll áður en árið er úti.
Búist er við að á sjöundu milljón farþega leggi leið sína um Keflavíkurflugvöll áður en árið er úti. Vísir/Vilhelm

Gert er ráð fyrir því að 6,2 milljónir farþega fari í gegnum Keflavíkurflugvöll í ár. Það er um hálfri milljón fleiri farþegar en farþegaspá Isavia frá því í maí gerði ráð fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Þar kemur jafnframt fram að hin uppfærða farþegaspá geri ráð fyrir 1,6 milljón fleiri farþegum en sú spá sem gefin var út í upphafi árs. Þrátt fyrir mikla fjölgun hafi starfsfólki vallarins tekist að tryggja að þjónusta við farþega hafi gengið greiðlega í sumar.

„Sumarið fór fram úr væntingum okkar. Nú í vetur stefna tuttugu flugfélög að því að heimsækja okkur, sem er mesti fjöldi sem hingað hefur flogið að vetri til. Það er greinilegt að Ísland heldur áfram að vera vinsæll áfangastaður fyrir ferðalanga,“ er haft eftir Grétari Má Garðarssyni, forstöðumanni flugfélaga og leiðarþróunar hjá Isavia.

Fleiri í ágúst 2022 en 2019

Samkvæmt tilkynningunni gera bráðabirgðatölur ráð fyrir því að rúmlega 841 þúsund farþegar hafi farið í gegnum völlinn í ágúst, sem eru fleiri farþegar en í ágúst 2019, síðasta ágústmánuði fyrir faraldurinn.

„Það eru tæplega 2,4 milljónir farþega í júní, júlí og ágúst í sumar samanborið við tæplega 2,5 milljónir sömu mánuði ársins 2019. Flogið var til 76 áfangastaða í ágúst og voru vinsælustu áfangastaðirnir Kaupmannahöfn, París, Boston, New York og Frankfurt,“ segir þá í tilkynningunni.

„Þökk sé okkar frábæra starfsfólki hefur gengið vel að takast á við þessa hröðu fjölgun farþega á Keflavíkurflugvelli frá því í vor og við höfum haldið okkar þjónustustigi uppi. Farþegatölur í júlí fóru fram úr sama mánuði fyrir heimsfaraldur, rétt eins og bráðabirgðatölur benda til að hafi verið í ágúst. Meðalbiðtími í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli hefur haldist í eða undir því viðmiði sem við setjum okkur og innritun hefur heilt yfir gengið vel þrátt fyrir miklar framkvæmdir á vellinum.

Þannig skapaðist ekki það krefjandi ástand sem sagt hefur verið frá á flugvöllum víða annar staðar í heiminum. Öflugur og samhentur hópur starfsfólks á Keflavíkurflugvelli á hrós skilið fyrir vaska framgöngu við að þjónusta ferðafólk,“ er haft eftir Önnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar hjá Isavia.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×