Viðskipti innlent

Skýrslan um söluna á Íslandsbanka á lokametrunum

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Þingið er nú í sumarfríi en búast má því að veturinn hefjist með látum; umræðu um skýrslu ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um umdeilda sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Þingið er nú í sumarfríi en búast má því að veturinn hefjist með látum; umræðu um skýrslu ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um umdeilda sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. vísir/vilhelm

Skýrsla ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka, er væntanleg innan tíðar. Mikil eftirvænting ríkir innan sem utan þings vegna skýrslunnar.

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi greindi frá því fyrir mánuði í samtali við Vísi að hann reiknaði með því að skýrslan yrði lögð fram í þeim mánuði. Útkoma hennar hafði þá frestast von úr viti en Guðmundur Björgvin sagði frá því að eitt og annað hefði sett strik í reikninginn svo sem Covid og sumarfrí starfsfólks.

Skýrslan væntanleg á næstu dögum

„Það er rétt að mánuðurinn sé á lokametrunum; við teljum skýrslugerðina reyndar vera það líka,“ segir Guðmundur Björgvin í samtali við Vísi í síðustu viku, þegar hann var rukkaður um skýrsluna.

„Við reiknum með að senda forseta Alþingis skýrsluna fljótlega, en ég er ekki reiðubúinn til að binda mig við einhvern tiltekinn dag í því sambandi. Ég geri ráð fyrir að skýrslan verði tekin fyrir af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um leið og hún liggur fyrir. Eins og gildir um allar okkar skýrslur til þingsins munum við birta skýrsluna á heimasíðu okkar sama dag og við kynnum efni hennar fyrir nefndinni,“ segir Guðmundur Björgvin.

Vart ætti að þurfa að rifja upp heita umræðu sem varð á Alþingi vegna þessa gjörnings, en meðal þess sem þótti orka tvímælis við framkvæmdina var hverjir fengu að kaupa hlut á vildarkjörum og svo hverjir ekki. Hver á fætur öðrum fóru þingmenn stjórnarandstöðunnar í pontu og kröfðust þess að á fót yrði sett sérstök rannsóknarnefnd Alþingis sem færi í saumana á sölunni. Þeir héldu því fram að ríkisendurskoðandi, sem væri undir fjármálaráðherra í stjórnsýslulegum skilningi, gæti vart af þeim sökum talist hæfur til að skila hlutlægri skýrslu um málið.

„Sérkennilegasta smjörklípa stjórnmálasögunnar“

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er meðal fjölmargra sem gagnrýndi söluna harðlega, að hlutur ríkisins væri ekki seldur á markaðsvirði. Hann taldi málið þannig vaxið að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra bæri að segja af sér vegna málsins, þarna væri verið að úthluta gæðum almennings í valda vasa.

Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru þau að leggja bankasýsluna, sem hafði framkvæmd sölunnar á sinni könnu, niður. Stjórnarandstæðingar töldu blasa við að með því væri verið að slá ryki í augu almennings, fjármálaráðherra hlyti að bera ábyrgð á hinni undeildu sölu. Ódýrt væri að gera bankasýsluna að blóraböggli í málinu. Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, er þeirrar skoðunar: „... spratt upp einhver hugmyndabastarður sem fer í sögubækurnar sem sérkennilegasta smjörklípa stjórnmálasögunnar. Einni ríkisstofnun var útrýmt til að komast undan pólitískri ábyrgð,“ sagði Sigmar í grein undir yfirskriftinni „Bankasýslan krossfest“.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×