Skoðun

Hræsni, Björn Steinbekk

Kristján Atli Baldursson Dýrfjörð skrifar

Björn Steinbekk hefur ráðist gegn þeim sem hafa sagt eitthvað um hann og krafist þess af fyrirtækjum á borð við Coca Cola, Nóa síríus ofl. styrktaraðilum að hætta samstarfi.

Núna hefur Coca Cola hætt sem styrktaraðili hjá Þungavigtinni út af ummælum sem hefur verið beðist afsökunar á. Honum þótti ekki nóg að fá afsökunarbeiðni á gegnum netið frá þeim aðila sem kallaði hann „ræningja” heldur krafðist þess að fá afsökunarbeiðni í persónu. Allir þeir sem ég þekki sem keyptu miða af honum hafa ekki fengið slíkt, eða þá neinar betri útskýringar hvað varð um alla þá fjármuni sem voru lagðir inn á félagið Sónar Reykjavík ehf., sem fór síðan í gjaldþrot stuttu síðar.

Sjá einnig: Opin­ber smánun í boði Nóa Síríus og Sýnar

Björn steinbekk var ekki dæmdur sem ræningi þar sem hann notaði einkahluta félagið sitt Sónar Reykjavík ehf. til að selja miðana að hans sögn. Hann hefur haft hátt í umræðunni undir það síðasta, og hótað kærum ofl. um þá sem tala um þetta mál. En ekki hafa öll kurl komið til grafar í þessu máli þar sem ekki hefur verið sýnt fram á hvert peningar sem lagðir voru inn á Sónar Reykjavík ehf. fóru.

Það er mjög undarlegt að hann talar sífellt að hann hafi verið svikinn, þó í dómsmálum er það fyrrverandi fyrirtækið hans og konu hans Sónar Reykjavík ehf. sem var undir í málarekstrinum tengdu því máli, en hann persónulega var sýknaður þar sem fólk átti að hafa“ viðskipti” við félagið hans, þó flest öll samskipti hafi farið fram í mínu tilfelli í gegnum facebook, fyrir utan nokkra tölvupósta.

Fram kemur í einhverjum greinum að 85 prósent miða hafi verið endurgreiddir en eftir því sem ég best veit átti ég vel yfir 25 prósent allra miða sem hann seldi, ásamt öðru fólki sem hafa ekki fengið endurgreitt en keyptu sjálf miða.

Að vera svindlari er óheiðarlegt atferli samkvæmt orðabók, hræsnin er algjör, er ekki nóg fyrir hann að fá grein fjarlægða og afsökunarbeiðni, heldur fer fram á að kostendur hlaðvarpa hætti að auglýsa hjá þeim, eftir að hafa fengið afsökunarbeiðni.

Nú hefur Coca Cola á Íslandi slitið samstarfi við hlaðvarp vegna þess að hann krefst þess að fá sína afsökunarbeiðni.

Ég hlýt þá að geta sett fram sömu kröfu á fyrirtæki sem hafa átt í viðskiptum við hann.

Toyota, Origo, Skjáskot, Síldarvinnslan, Iceland Air ofl.

Undirskrifaður keypti miða af Framkvæmdastjóra Sónar Reykjavík eða Birni steinbekk að andvirði 5.2 milljónir og bauð 10 flugsæti til Tólfunnar stuðningsmannasveit Íslensku landsliðanna. Björn Steinbekk hefur þó ekki endurgreitt mér eina krónu og hvað þá beðið mig afsökunar í persónu eða útskýrt sitt mál betur. Spurning að hann eyði frekar tíma sínum í að biðja aðra afsökunar en að heimta slíkt frá öðrum og ráðast á þeirra lífsviðurværi.

Ég hef nýtt tækifærið áður að biðja þá alla sem voru í fluginu hjá mér afsökunar og geri ég það hér með aftur.

Tekið skal fram að allir miðar á leikinn sem seldust í gegnum mig (netmidi.is) voru endurgreiddir. 74 Miðar voru seldir af 100, sem aldrei fengust afhentir.

Höfundur er eigandi lénanna steinbekk.is og offtoiceland.is.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×