Viðskipti erlent

Selur í Tesla af ótta við þvinguð kaup á Twitter

Samúel Karl Ólason skrifar
Auðjöfurinn Elon Musk hefur á einu ári selt hlutabréf í Tesla fyrir um 32 milljarða dala en þar af seldi hann mikið magn hlutabréfa til að standa skil af skattgreiðslum.
Auðjöfurinn Elon Musk hefur á einu ári selt hlutabréf í Tesla fyrir um 32 milljarða dala en þar af seldi hann mikið magn hlutabréfa til að standa skil af skattgreiðslum. Getty/Theo Wargo

Auðjöfurinn Elon Musk hefur selt hlutabréf í Tesla fyrir um 6,9 milljarða dala, sem samsvarar tæplega billjón króna, lauslega reiknað. Musk seldi bréfin af ótta við að verða þvingaður til að kaupa samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter.

Söluhagnaðinn vildi Musk þá nota til að fjármagna kaupinn á Twitter.

Reuters hefur eftir Musk að hann vonist til að hann verði ekki þvingaður til að kaupa Twitter og að samstarfsaðilar hans hætti ekki við. Ef það myndi gerast, vill hann komast hjá því að halda einhverskonar neyðarsölu á hlutabréfum sínum, því bróðurpartur eigna hans er bundinn í hlutabréfum hans í Tesla.

Wall Street Journal segir að undanfarið ár hafi Musk selt hlutabréf í Tesla fyrir um 32 milljarða dala en þar af seldi hann mikið magn hlutabréfa til að standa skil af skattgreiðslum. Hann er metinn á um 250 milljarða.

Musk skrifaði í apríl undir samning um að kaupa Twitter á 44 milljarða dala, eða 54 dali á hlut. Þegar þetta er skrifað stendur virði hlutabréfa Twitter í 42,83 dölum á hlut.

Auðjöfurinn lýsti því þó yfir í síðasta mánuði að hann væri hættur við kaupin og bar hann fyrir sig því forsvarsmenn Twitter hefðu ekki orðið við kröfum hans um gögn og upplýsingar um raunverulegan fjölda falskra reikninga og svokallaða botta. Hann sagðist þurfa þær upplýsingar til að meta raunverulegt verðmæti Twitter.

Auðjöfurinn nefndi einnig að tveimur háttsettum starfsmönnum Twitter hefði verið sagt upp, án samráðs við sig eins og kaupsamningurinn segir til um.

Samkomulag enn líklegasta niðurstaðan

Forsvarsmenn Twitter sögðust hins vegar hafa orðið við öllum hans kröfum og höfðuðu mál gegn Musk og vilja að hann standi við samninginn. Hann á fyrir um níu prósent af hlutabréfum Twitter en réttarhöldin munu hefjast þann 17. Október.

Sérfræðingar hafa sagt að líklegasta niðurstaða réttarhaldanna verði einhverskonar samkomulag og sérfræðingur sem Reuters ræddi við segir nýjustu hlutabréfasölu Musks gera þá niðurstöðu enn líklegri.

Verði Musk ekki þvingaður til að kaupa Twitter segist hann ætla að kaupa aftur hlutabréf í Tesla. Hann hefur einnig gefið í skyn að hann hafi áhuga á að stofna eigin samfélagsmiðil sem nefnist X.com.


Tengdar fréttir

Tesla Model Y að verða mest seldi bíll heims

Rafjepplingurinn Tesla Model Y er á hraðri leið með að vera mest seldi bíll ársins 2022 þegar horft er til tekna af sölu. Á næsta ári er útlit fyrir að Model Y verði mest seldi bíll heims þegar kemur að seldum eintökum. Það verður að teljast merkilegur árangur fyrir stóran rafbíl.

Musk þvertekur fyrir ásakanirnar

Elon Musk, forstjóri og stofnandi Telsa, neitar því að hafa nokkurn tímann átt í kynferðislegu sambandi með Nicole Shanahan, eiginkonu stofnanda Google, Sergey Brin.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×