Erlent

Hand­tekinn grunaður um að hafa stungið stúlkuna til bana

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Karlmaðurinn var handtekinn fyrr í dag.
Karlmaðurinn var handtekinn fyrr í dag. Getty/Giddens

Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stungið níu ára stúlku til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í vikunni.

Tveir höfðu áður verið yfirheyrðir en var sleppt að lokinni skýrslutöku. Lögregla segir að ábendingar almennings auk annarra upplýsinga hafi leitt til þess að hinn grunaði hafi fundist. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn nú sá eini sem er grunaður í málinu.

Árásin átti sér stað á fimmtudaginn nærri St. Botolph‘s kirkjunni þar sem stúlkan, Lillia Valutyte, var að leik með yngri systur sinni. Fjöldi fólks hefur lagt blóm og kerti nálægt kirkjunni í minningu Lilliu.


Tengdar fréttir

Nafn stúlkunnar sem var stungin til bana í Boston birt

Stúlkan sem stungin var til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í gær heitir Lilia Valutyte. Hún var aðeins níu ára gömul og fannst látin á sjöunda tímanum í gærkvöldi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×