Fótbolti

Bætti treyjusölumet Ronaldo

Valur Páll Eiríksson skrifar
Miklar vonir eru bundnar við Paulo Dybala í ítölsku höfuðborginni.
Miklar vonir eru bundnar við Paulo Dybala í ítölsku höfuðborginni. Fabio Rossi/AS Roma via Getty Images

Skipti Paulo Dybala frá Juventus til Roma virðast hafa kveikt vel í stuðningsmönnum liðsins frá höfuðborginni. Aldrei hafa fleiri treyjur selst á einum degi á Ítalíu og þegar hann samdi við Roma.

Samningur hins 28 ára gamla Dybala við Juventus, hvar hann hefur verið í sjö ár, rann út þann 30. júní. Ljóst var að hann myndi ekki framlengja við liðið og Roma stökk á tækifærið til að krækja í Dybala frítt.

Miklar vonir voru bundnar við Argentínumanninn þegar hann var keyptur á 40 milljónir evra frá Palermo árið 2015 en hann hefur átt tímana tvenna í Tórínó, þar sem tíð stjóraskipti allra síðustu ár hafa ef til vill sett strik í reikninginn. Besta leiktíð hans var 2017-18 þar sem hann skoraði 22 mörk í ítölsku A-deildinni.

Síðustu fjórar leiktíðir síðan hafa verið magrari hvað markaskorun varðar en fáum dyljast hæfileikar mannsins. Stuðningsmenn Roma eru þar á meðal en gríðarleg spenna virðist hafa gripið um sig fyrir komu Dybala til félagsins.

Búast má við að sjá marga í Rómarborg í treyju merkta með 21 í vetur.Fabio Rossi/AS Roma via Getty Images

Félagið seldi flestar treyjur á einum degi sem nokkurt ítalskt lið hefur gert áður. Þar með bætir Roma met Juventus sem græddi tugi milljóna evra á einum sólarhring þegar Cristiano Ronaldo var keyptur til félagsins frá Real Madrid sumarið 2018.

Roma lenti í 6. sæti ítölsku deildarinnar í fyrra á sinni fyrstu leiktíð undir stjórn Portúgalans José Mourinho. Liðið vann þá Sambandsdeild Evrópu og mun því leika í Evrópudeildinni í ár.

Dybala er einn fjögurra leikmanna sem liðið hefur keypt, ásamt Serbunum Nemanja Matic og Mile Svilar, auk Tyrkjans Zeki Celik sem kom frá Lille í Frakklandi.

Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×