Umfjöllun: Þýska­land-Spánn 2-0 | Þýska­land fyrsta liðið til þess að komast í átta liða úrslitin

Atli Arason skrifar
Þjóðverjar eru komnir í útsláttarkeppni Evrópumótsins. 
Þjóðverjar eru komnir í útsláttarkeppni Evrópumótsins.  Vísir/Getty

Klara Buhl kom þýska liðinu yfir strax á þriðju mínútu leiksins og Alexandra Popp tvöfaldaði forystu Þjóðverja undir lok fyrri hálfleiks. 

Popp, sem leikur með Wolfsburg, var þarna að skora sitt annað mark á mótinu en hún skoraði eitt marka liðsins í 4-0 sigri gegn Danmörku í fyrstu umferðinni. 

Þar við sat og Þýskaland er með sex stig á toppi B-riðilsins og liðið er komið í átta liða úrslit keppninnar þar sem liðið hefur haft betur gegn bæði Spánverjum og Dönum sem eru í öðru til þriðja sæti. 

Spánn og Danmörk hafa hvort um sig þrjú stig en Danir báru sigurorð af Finnlandi, sem er án stiga, í fyrri leik dagsins í riðlinum. 

Þýskaland mætir Finnlandi í lokaumferð riðilsins á laugardaginn kemur en sama dag leiða Spánn og Danmörk saman hesta sína í úrslitaleik um að fylgja Þýskalandi í átta liða úrslitin.  

Irene Paredes reynir að halda aftur af Alexöndru Popp í leik liðanna í kvöld. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira