Fótbolti

Ekkert ó­vænt í byrjunar­liði ís­lenska liðsins

Hjörvar Ólafsson skrifar
Það er ekkert sem kemur á óvart í byrjunarliði íslenska liðsins. 
Það er ekkert sem kemur á óvart í byrjunarliði íslenska liðsins.  Vísir/Vilhelm

Tilkynnt hefur verið hvernig byrjunarlið íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta verður í fyrsta leik liðsins í lokakeppni Evrópumótsins á Englandi. 

Sandra Sigurðardóttir mun verja mark íslenska liðsins á móti Belgum sem hefst klukkan 16.00 á æfingavelli Manchester City. 

Hallbera Guðný Gísladóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir og Sif Atladóttir verða í fjögurra manna varnarlínu. 

Sara Björk Gunnarsdóttir, sem ber fyrirliðabandið, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir verða inni á miðsvæðinu. 

Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir verða svo í framlínunni. 

Þorsteinn Hreiðar Halldórsson stillir upp hefðbundnu byrjunarliði í þessum leik. Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Íslenska liðið stillti sér upp fyrir leik.Vísir/Vilhelm
Berglind Björg fékk besta tækifæri fyrri hálfleiks.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×