Útspil iðnaðarráðherra mikil vonbrigði Hópur formanna meistarafélaga innan Samtaka iðnaðarins skrifar 1. júlí 2022 14:30 Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar hefur lagt fram tillögu um afnám á löggildingu 17 iðngreina. Hvorki var haft samráð við meistarafélög einstakra iðngreina né Samtök iðnaðarins áður en þessar tillögur voru lagðar fram líkt og gert er ráð fyrir í lögum um handiðn og reglugerð um löggiltar iðngreinar. Ráðherra hefur einnig gefið til kynna að það eigi að halda áfram að afnema lögverndun iðngreina. Lítið hefur hins vegar borið á skilningi ráðherra á því hvaða tilgangi löggilding þjónar. Ráðherra lýsir löggildingu sem litlu meiru en opinberum stimpli og óþarfa „bjúrókrasíu“ sem dragi úr atvinnufrelsi og samkeppnishæfni Íslands. Því fer fjarri. Lögverndun iðngreina er ekki kerfislægur óþarfi heldur órjúfanlegur og mikilvægur hluti íslenska iðnmenntakerfisins. Þar horfir ráðherra til að mynda framhjá mati OECD frá 2013 um starfsmenntun á Íslandi. OECD benti á að það væri meðal styrkleika Íslands að hér sé sterkt iðnnámskerfi innan löggiltra starfsgreina sem byggi á árangursríku jafnvægi milli starfsþjálfunar á vinnustað og utan hans og skýrum valkostum um framhaldsmenntun til iðnmeistararéttinda eða eftir öðrum leiðum. Löggilding starfsgreina er alþekkt og víða notuð til að ná fram markmiðum stjórnvalda, hér á landi meðal annars til að styðja við og styrkja íslenskt menntakerfi, auka neytendavernd, öryggi og heilsu. Ráðherra hefur staðhæft að Ísland sé heimsmethafi í löggildingu starfsgreina og setur í samhengi viðþörf fyrir meira atvinnufrelsi og aukna samkeppnishæfni. Samkvæmt upplýsingum á vef Evrópusambandsins er Ísland í 22. sæti af 31 Evrópulandi varðandi fjölda starfsgreina og starfsheita sem njóta lögverndar. Meðaltal ríkjanna á listanum er rúmlega 207 greinar. Staðhæfingar um að hömlur af þessu tagi séu miklu meiri hér á landi en gengur og gerist í öðrum ríkjum eiga því ekki við rök að styðjast. Undanfarin ár hefur kapp verið lagt á að auka veg og vanda iðngreina enda mikill skortur á iðnmenntuðu starfsfólki. Aðsókn í iðnnám hefur aukist mikið meðal annars vegna samstillts átaks stjórnvalda og iðnaðar. Löggilding iðngreina er mikilvægur þáttur á þessari vegferð og stuðlar að faglegu starfsumhverfi í iðnaði. Sú löggjöf sem liggur til grundvallar er bæði ætlað að skapa hvata fyrir einstaklinga til að sækja sér iðnmenntun og vissu fyrir neytendur um að þeir einstaklingar sem veita þeim þjónustu á sviði handiðnaðar hafi tilskilda færni. Meistarafélög innan Samtaka iðnaðarins hafa kallað eftir umbótum á löggjöfinni til að bæta starfsumhverfi þeirra þúsunda einstaklinga og fyrirtækja sem starfa í iðnaði og efla íslenskan iðnað. Meistarafélög iðngreina innan Samtaka iðnaðarins vilja áfram vera í góðu samstarfi við stjórnvöld um eflingu iðnmenntunar og umbætur á sviði iðnaðar. Því er útspil iðnaðarráðherra mikil vonbrigði. Aðalsteinn Þór Arnarsson, formaður Félags rafverktaka á Norðurlandi Arna Arnardóttir, formaður Félags íslenskra gullsmiða Arnbjörn Óskarsson, formaður Félags rafverktaka á Suðurnesjum Ásgrímur Þór Ásgrímsson, formaður Félags húsgagnabólstrara Bjarni Ólafur Marinósson, formaður Meistarafélags byggingarmanna í Vestmannaeyjum Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara Einar Beinteinsson, formaður Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara Eyjólfur Eyjólfsson, formaður Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda Grétar I. Guðlaugsson, formaður Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum Hannes Björnsson, formaður Múrarameistarafélags Reykjavíkur Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir, formaður Félags hársnyrtimeistara á Norðurlandi Heiðar Smári Harðarson, formaður Félags skrúðgarðyrkjumeistara Helgi Guðjónsson, formaður Málms - samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði Hjörleifur Stefánsson, formaður Samtaka rafverktaka Hrafnkell Guðjónsson, formaður Félags rafverktaka á Austurlandi og formaður starfsgreinahóps fyrirtækja í mannvirkjagerð á Austurlandi Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða Jón Þórðarson, formaður Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði Katla Sigurðardóttir, formaður Klæðskera- og kjólameistarafélagsins Kristján Aðalsteinsson, formaður Málarameistarafélagsins Magnús Gíslason, formaður Félags rafverktaka á Suðurlandi Magnús Guðjónsson, formaður Félags rafvertaka á Vesturlandi Marinó Hákonarson, formaður starfsgreinahóps fyrirtækja í mannvirkjagerð á Vesturlandi Pétur Halldórsson, formaður Félags löggiltra rafverktaka Rebekka Ýr Einarsdóttir, formaður Félags íslenskra snyrtifræðinga Sigurður Gunnarsson, formaður Félags rafeindatæknifyrirtækja Sigurður M. Guðjónsson, formaður Landssambands bakarameistara Sigurður R. Sigþórsson, formaður Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi Sævar Óskarsson, formaður Félags rafverktaka á Vestfjörðum Sævar Jónsson, formaður Félags blikksmiðjueigenda Valdimar Bjarnason, formaður Meistarafélags Suðurlands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Vinnumarkaður Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar