Matur

Hel­vítis kokkurinn: Rauð­víns­soðnir lambaskankar

Elísabet Hanna skrifar
Ívar elskar að elda.
Ívar elskar að elda. Skjáskot

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og kemur inn vikulega.

Uppskriftina úr þættinum má sjá hér að neðan. Rauðvínssoðnir lambaskankar með kartölfumús og kaffikorgs sósu:

Klippa: Helvítis kokkurinn - Rauðvínssoðnir lambaskankar með kartölfumús og kaffikorgs sósu

Lamb

  • 4 lambaleggir/skankar
  • 2 msk olía
  • salt og pipar
  • 2 laukar
  • 4 hvítlauksrif
  • 4 gulrætur
  • 6 greinar garðablóðberg
  • 2 msk paprikuduft
  • 3 greinar rósmarín
  • 200 gr sellerírót
  • 2 msk tómatpurré
  • 300 ml nautasoð
  • 2 msk smjör
  • 500 ml rauðvín
  • 1 msk kaffikorgur í sósuna

Kartöflumús

  • 4 bökunarkartöflur
  • 1 hvítlauksrif
  • salt og pipar
  • 200 gr smjör
  • steinselja

Baunir og sveppir

  • 400 gr strengjabaunir
  • 200 gr sveppir
  • 1 msk olía
  • salt og pipar
  • 1 msk smjör
Ljúffengt!Helvítis kokkurinn.

Aðferð:

  1. Brúnið lambaleggi í potti á öllum hliðum og kryddið með hvítlauk, salti og pipar. Skerið lauk og gulrætur í tvennt. Afhýðið og skerið sellerírót í teninga. Bætið öllu sem eftir er í uppskrift út í steikarpottinn. Bakið í ofni í 3 tíma á 140 gráðum með loki á. Hækkið ofn í 200 gráður og bakið í 30 mínútur með lokið af. Takið leggina úr pottinum og blandið innihaldi pottsins saman með töfrasprota. Bætið við kaffikorgi til að bragðbæta sósuna.

  2. Bakið kartöflur í ofni í 1 klst á 200 gráðum. Kreistið kartöflur úr hýðinu í pott og stappið. Saxið hvítlauk og steinselju. Blandið saman við smjör, salt og pipar, hvítlauk og steinselju.

  3. Steikið baunir á pönnu upp úr olíu og smjöri og kryddið með salti og pipar.

Helvítis kokkurinn eru matreiðsluþættir sem koma út á Vísi og Stöð 2+ í sumar. Hægt er að fylgjast nánar með á Instagram.

Njótið!


Tengdar fréttir

Helvítis kokkurinn: Pasta með cajun kjúlla

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Helvítis kokkurinn: Fish & Ships

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Helvítis kokkurinn: Kjúklingasamloka með Bourbon-Beikon sultu

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn

Ívar Örn Hansen er að fara af stað með matreiðsluþættina Helvítis kokkurinn hér á Vísi og á Stöð 2+ þar sem hann eldar bragðgóðan mat á mannamáli og sleppir öllu kjaftæðinu. Sjálfur er hann mikill matarunnandi sem elskar að gleðja aðra með góðum mat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×