Hver er Helvítis kokkurinn?
Ég er matreiðslumaður að mennt með aldarfjórðungs reynslu úr veitingageiranum. Ég hef starfað á veitingahúsum, hótelum og í mötuneytum um allt land og til sjós.
Ég er einstaklega hamingjusamlega giftur Þóreyju Hafliðadóttir margmiðlunarhönnuði sem starfar á Kvartz Markaðsstofu og við eigum saman tvo unga menn þá Daníel Inga og Samúel Tý sem eru báðir nemar í framhaldsskóla.
Hvað gerir þú í frítíma þínum?
Frítími minn fer að mestu leiti í áhugamál mín sem eru að elda góðan mat fyrir fólk, fluguveiði, mótorhjólið mitt, ferðast um fallega landið okkar, fara út að borða og alls konar matartengt stöff.
„Ég elska mat og matreiðslu, það að sjá bros á fólki og hlusta á þögnina sem kemur þegar allir við borðið koma ekki upp orði… af unun.“
Hvaðan kom nafnið á þáttinn?
Nafnið kemur frá þeim tíma sem ég var að læra kokkinn seint á síðustu öld. Nokkrir vinir mínir byrjuðu að nota gælunafnið „Kokkurinn” sem þróaðist svo út í Helvítis kokkinn útaf allskonar vitleysu sem ungir menn gera. Nafnið nota þessir sömu vinir mínir enn þann dag í dag og mér þykir bara orðið ansi vænt um það.
Svo fékk frændi minn og fóstbróðir hann Hlynur Þór þessa flugu í hausinn að ég ætti að búa til matreiðsluþátt sem væri á skjön við þá þætti sem verið hafa hingað til í sjónvarpi. Helvítis Kokkinn.
„Matreiðsluþáttur fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat á mannamáli.“
Hvaðan kemur mataráhuginn?
Mataráhugi minn kviknaði mjög snemma eða um það leiti sem ég var að stíga mín fyrstu spor í veitingageiranum sem þjónn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er ‘94 og ég var ný fermdur. Kokkurinn í eldhúsinu átti hug minn allan.
Hvernig hann bar sig, hvíti gallinn, hvernig hann talaði óheflað og sagði skemmtilega frá með kaffibolla í annari og sígó í hinni og eldaði fallegan og bragðgóðan mat.
„Og ekki skemmdi að mér fannst maturinn OFBOÐSLEGA góður.“
Ef þú mættir bara borða eina máltíð út lífið, hvað væri það?
Ef ég ætti að velja einn rétt sem ég gæti borðar það sem eftir er þá væri það Fiskibollur með karrýsósu, soðnum kartöflum og grjónum. Namm!
Rare, medium eða well done?
Besta mögulega steiking er alltaf medium rare fyrir mig.
„Well done er waste of money.“
Hér að neðan má heyra viðtal við Ívar frá því í vikunni: