Viðskipti innlent

Bruggarar sjá fram á tafir: „En þessi dagsetning verður alltaf í minnum höfð“

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Þeir Andri Þór og Steinn sjá um Malbygg brugghús á Skútuvogi.
Þeir Andri Þór og Steinn sjá um Malbygg brugghús á Skútuvogi. vísir/ívar

Ólíklegt er að brugghús geti hafið sölu á áfengi út úr húsi strax og ný áfengislög taka gildi næsta föstudag. Bruggarar eru að minnsta kosti ekki bjartsýnir á að það verði enda þurfa þeir að fara í gegn um langt umsóknarkerfi hjá sýslumanni og sveitarfélögum til að mega hefja sölu. Dómsmálaráðherra vonast þó til að málunum verði veitt flýtimeðferð í stjórnkerfinu.

Nýju lögin kveða á um að hand­verks­brugg­hús sem fram­leiða minna en 500 þúsund lítra af bjór megi selja hann út úr húsi. Það mega brugg­hús sem fram­leiða minna en 100 þúsund lítra af sterku á­fengi einnig gera. Þetta átti að taka gildi þann 1. júlí, næsta föstu­dag.

Til að fá leyfi fyrir þessu verða brugg­húsin þó að sækja um það sér­stak­lega hjá sýslu­manni. Eins og greint var frá í dag er slíkt um­sóknar­eyðu­blað enn ekki til­búið og því hefur ekki verið hægt að sækja um enn.

Ferlið getur svo tekið þrjár vikur eða meira en sýslu­maður þarf að fá um­sagnir frá sveitar­fé­laginu sem brugg­húsið er í, sem verður ofan á það að fá um­sagnir ýmissa eftir­lits­aðila á borð við slökkvi­lið og heil­brigðis­eftir­lit.

Túristarnir aðalmálið

Bruggarar sjá fæstir fram á að geta byrjað að selja á­fengi út úr húsi strax á föstu­dag.

Þetta verður kannski ekki svona stór dagur 1. júlí eins og allir voru að gera ráð fyrir?

„Nei, það er kannski ó­lík­legt. Lík­lega ekki en ég held samt að þessi dag­setning verði alltaf í minnum höfð,“ segir Steinn Stefáns­son, markaðs­stjóri Mal­byggs brugg­húss.

Andri Þór Kjartans­son, for­stjóri Mal­byggs, efast um hægt verði að flýta þessu ferli fyrir helgi.

„Ég held að það verði ekki búið að því. Alla­vega ekki miðað við það sem ég hef heyrt um að það verði hugsan­lega komið um­sóknar­eyðu­blað fyrst á föstu­daginn,“ segir Andri.

Brugg­húsið er þó gríðar­lega á­nægt með breytinguna sem slíka.

„Sér­stak­lega upp á túr­istana sem eru að koma í heim­sókn og vilja taka með sér heim,“ segir Andri.

Þeir sem fram­leiða viskí eru þolin­móðir að eðlis­fari

Þessu finna flest brugg­húsin fyrir og á­stæðan fyrir því að lögin áttu að taka gildi nú strax í byrjun júlí var ein­mitt sú að þing­mönnum þótti æski­legt að brugg­húsin myndu ná túr­istunum á þessu ferða­manna­sumri og selt þeim bjór.

„Það væri gaman að fá þetta í gang strax um sumarið. Það er mikið af túr­istum að koma til okkar. Við fáum hérna fimm þúsund gesti á hverju sumri í viskís­mökkun og það væri mjög gaman að geta boðið þeim að versla líka hjá okkur viskí,“ segir Haraldur Þor­kels­son, eig­andi Eim­verks, sem fram­leiðir viskí, gin og brenni­vín.

Haraldur framleiðir íslenskt viskí, brennivín og gin. Hann er að vonum sáttur með nýju lögin.vísir/ívar

Hann segist þó ekki von­góður um að geta hafið sölu strax á föstu­dag.

„Auð­vitað væri skemmti­legt ef það væri bara hægt að fara af stað núna á föstu­daginn en það er ekki víst að það verði. En við sem erum í viskíinu erum mjög þolin­móð. Það tekur tólf ár að gera tólf ára viskí og þó að þetta taki ein­hverjar vikur í við­bót þá verður það bara að hafa sig,“ segir Haraldur.

Ekki hræddur við sveitarfélögin

Sigurður Pétur Snorra­son, eig­andi RVK Brugg­stofunnar vonar að sveitar­fé­lögin reynist ekki steinn í götu brugg­húsanna en veiti þau sýslu­manni nei­kvæða um­sögn um brugg­húsin fá þau ekki um­rætt leyfi til að selja út úr húsi.

„Ég vona ekki. Það eru lítil brugg­hús úti á landi í brot­hættum byggðum og ég hef ekki heyrt annað en að sveitar­fé­lögin þar taki vel í þetta. Ég veit svo sem ekki um af­stöðu hérna í Reykja­vík en ég á nú ekki von á að það verði mikil mót­staða þar,“ segir Sigurður.

Sigurður vonar að hægt verði að flýta fyrir leyfisveitingunum.vísir/ívar

For­maður Sam­taka ís­lenskra hand­verks­brugg­húsa sagði í há­degis­fréttum okkar á Bylgjunni í dag að hún óttaðist að brugg­hús gætu ekki hafið söluna fyrr en 1. ágúst eða jafn­vel 1. septem­ber.

Sigurður vonar að hann þurfi ekki að bíða svo lengi: „Við skulum vona að þetta taki ekki það langan tíma og þeir finni ein­hverja lausn á þessu vanda­máli.“

Þorir ekki að lofa neinu

Og þetta vonar sjálfur dómsmálaráðherra einnig. Hann segist hafa sett sig í samband við sýslumannsembættin og beðið þau að flýta fyrir málunum. Hann á svo sjálfur eftir að birta reglugerð um hvernig sölunni verði háttað, til dæmis verður þar væntanlega ákvæði um það magn sem brugghúsin mega selja út úr húsi í einu. 

„Ég geri ráð fyrir að hún verði tilbúni á morgun. Og við höfum sett okkur í samband við sýslumannsembættin og beðið þau að hraða sinni málsmeðferð eins og hægt er. Þangað þarf að sækja um viðkomandi leyfi,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. 

Jón vonar að sveitarfélögin sýni málinu skilning og verði fljót að afgreiða umsagnir sínar.vísir/ívar

„Vilji löggjafans og minn er alveg skýr. Við vildum að þetta gæti hafist strax 1. júlí. Ef að þetta getur gengið hratt og vel fyrir sig eins og maður sér alveg möguleikann á allavega í þessum fámennari sveitarfélögum þar sem mörg af þessum litlu brugghúsum eru, þá ætti þetta jafnvel að geta hafist fyrir helgi. En ég veit það ekki ég þori ekki að fullyrða um það.“


Tengdar fréttir

Ólíklegt að brugghús geti hafið sölu strax á föstudag

Smá brugghús óttast að geta ekki hafið sölu á bjór út úr húsi þann 1. júlí eins og boðað var með breytingu á áfengislögum. Bið eftir reglugerð og langt ferli leyfisveitinga í gegn um sýslumann virðast tefja málið.

Hægt að nálgast ó­dýrari bjór eftir laga­breytinguna

Stærsta breyting á áfengislögum frá því að bjórbanninu var aflétt var samþykkt í gær. Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að frjálsum áfengismarkaði á Íslandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×