Golf

Jon Rahm hefur áhyggjur af framtíð Ryder-bikarsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jon Rahm vonar að LIV-mótaröðin í golfi hafi ekki slæm áhrif á Ryder-bikarinn.
Jon Rahm vonar að LIV-mótaröðin í golfi hafi ekki slæm áhrif á Ryder-bikarinn. David Cannon/Getty Images

Kylfingurinn Jon Rahm segist hafa áhyggjur af framtíð Ryder-bikarsins í golfi og vonar að mótið hljóti ekki skaða af því að margar af stærstu golfstjörnum heims séu að færa sig á sádí-arabísku LIV-mótaröðina.

Spánverjinn mætir til leiks á Opna bandaríska meistaramótið um helgina þar sem hann mun freista þess að verja titil sinn. Nú stuttu fyrir mót fór hann þó að viðra áhyggjur sínar af Ryder-bikarnum.

„Ryder-bikarinn er stærsta aðdráttaraflið til að fá nýtt fólk inn,“ sagði Rahm.

„Ég vona að við missum ekki kjarnan úr Ryder-bikarnum. Það er það sem eg hef mestar áhyggjur af.“

„Þetta er mót þar sem við spilum allir frjálsir. Þetta er ein af uppáhalds vikunum okkar, sama hvort við vinnum eða töpum. Það segir ýmislegt um leikinn og hvar ég vona að hann verði.“

Evrópskir kylfingar geta tekið þátt í Ryder-bikarnum, sem haldinn er annað hvert ár, ef þeir eru hluti af DP World Tour-mótaröðinni. Amerískir kylfingar þurfa að vera hluti af PGA-mótaröðinni ef þeir vilja taka þátt.

Yfirmenn PGA-mótaraðarinnar hafa hins vegar bannað þeim kylfingum sem taka þátt á LIV-mótaröðinni, eða skrá sig í hana, að vera hluti af PGA-mótaröðinni.

„Ef einhver vill keppa í Ryder-bikarnum fyrir Bandaríkinn þarf sá hinn sami að vera meðlimur í PGA og þeir verða meðlimir með því að taka þátt á PGA-mótaröðinni,“ sagði Seth Waughn, yfirmaður PGA-mótaraðarinnar á seinasta ári.

Forráðamenn DP World Tour-mótaraðarinnar hafa hins vegar ekki enn tekið ákvörðun um málið. Þeir segja að vegna þess hversu flókin staðan sé sé enn verið að vega og meta þá möguleika sem fyrir hendi eru. Búist er við ákvörðun frá forráðamönnum DP World tour eftir tvær vikur.

Bandarísku kylfingarnir Bryson DeChambeau, Dustin Johnson og Phil Michelson hafa allir sagt skilið við PGA-mótaröðina og gengið til liðs við LIV. Evrópsku kylfingarnir Ian Poulter, Lee Westwood og Sergio Garcia hafa einnig farið sömu leið.

„Munu þeir spila í Ryder-bikarnum, þessir kylfingar sem fóru?“ spurði Rahm.

„Fyrir mér, Sergio [Garcia], þó hann sé ekki að slá undir 90 höggum, er hann augljóst val í liðið. Þannig að hvað er að fara að gerast?“

„Svo ertu með nokkra unga Bandaríkjamenn. Bryson [DeChambeau] fór, einhver sem var líklega að fara að vera í liðinu í framtíðinni. Fyrirliðastaða Phil [Mickelson] er örugglega í hættu.“

„Ég hef ekki hugmynd um hvað er að fara að gerast eða hvað gengur á á Evrópumótaröðinni. Ég veitt ekki hvað mun gerast.“

Spánverjinn lék æfingahringi með Phil Mickelson og Kevin Na á dögunum, en báðir hafa þeir gengið til liðs við LIV-mótaröðina. Rahm segir þó að þetta sé ekki fyrir sig, en segist þó skilja að einhverju leyti af hverju menn færa sig yfir, enda eru miklir peningar í boði.

„Uppsetningin á þessu er ekki fyrir mig. Þrír dagar er ekki golfmót, það er enginn niðurskurður. Svo einfalt er það.“

„Ég ætla að orða þetta varlega. Ég skil nokkur af þeim rökum fyrir því að færa sig yfir. En ég vil spila við þá bestu í heimi í mótafyrirkomulagi sem hefur verið notað í hundruð ára. Ég hef alltaf haft áhuga á sögu og arfleifð og eins og staðan er núna þá býður PGA-mótaröðin upp á það. Hjartað mitt fylgir PGA-mótaröðinni.“

„Ég gæti hætt núna og lifað mjög góðu lífi. Þegar ég og konan mín ræddum þetta spurðum við okkur hvort að lífstíllinn okkar myndi breytast þó ég fengi 400 milljónir dollara. Nei, hann mun ekki breytast neitt.“

„Ég spila af því ég elska leikinn og ég vil spila á móti þeim bestu í heimi,“ sagði Rahm að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×