Matur

Helvítis kokkurinn: Fish & Ships

Elísabet Hanna skrifar
Fish&Ships er Írvars útgáfa af hinum klassíska rétti Fish&Chips.
Fish&Ships er Írvars útgáfa af hinum klassíska rétti Fish&Chips. Helvítis kokkurinn

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Í þetta skiptið er það léttsöltuð langa, djúpsteikt í Stelludeigi með sætkartöflubátum og tartarsósu. Uppskriftina úr þættinum má sjá hér að neðan:


Langan

  • 600 gr langa
  • 200 ml vatn
  • 40 gr salt
  • 3 l djúpsteikingarolía
  • Stellu deig
  • 100 gr hveiti
  • 130 gr hrísgrjónahveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • pipar
  • 2 msk olía
  • 330 ml Stella Artois

Sætkartöflubátar

  • 400 gr sæt kartafla
  • salt og pipar
  • 2 msk olía
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 greinar timjan

Tartarsósa

  • 200 ml mayo
  • 30 ml sýrður rjómi
  • 50 gr súrar gúrkur
  • 2 soðin egg
  • dill eftir smekk
  • 1 msk worchester
  • 30 gr laukur
  • safi úr hálfri sítrónu
  • salt og pipar
Fish&ships er skemmtilegur réttur þar sem um er að ræða kartöflubáta í staðinn fyrir venjulegar franskar.Helvítis kokkurinn

Aðferð:

  1. Blandið vatni og salti saman. Skerið lönguna í þunna bita og leggið í pækilinn í 1 klst og látið standa við stofuhita. Þerrið fiskinn og kælið.

  2. Blandið Stellu deigið í hrærivél. Hitið olíu í potti í 165 gráður. Veltið fisknum upp úr hveiti, dýfið í deigið og leggið rólega í heita olíuna í pottinum. Steikið fiskinn í 3 - 6 mínútur. Fer eftir stærð bita. Leggið fiskinn á gatabakka eða á pappír svo að auka olía leki af.

  3. Skerið sætar kartöflur í báta, veltið upp úr olíu. Kryddið með söxuðum hvítlauk, salti, pipar og timjan. Bakið í ofni á 190 gráðum í 30 mín.

  4. Skerið egg í smáa bita, saxið gúrku, dill og lauk. Blandið öllu saman í tartarsósuna

Njótið!


Tengdar fréttir

Helvítis kokkurinn: Kjúklingasamloka með Bourbon-Beikon sultu

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn

Ívar Örn Hansen er að fara af stað með matreiðsluþættina Helvítis kokkurinn hér á Vísi og á Stöð 2+ þar sem hann eldar bragðgóðan mat á mannamáli og sleppir öllu kjaftæðinu. Sjálfur er hann mikill matarunnandi sem elskar að gleðja aðra með góðum mat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×