Rauði þráðurinn er hundur að skíta Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. júní 2022 12:30 Þorvaldur Jónsson opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR11 í dag. Aðsend Listamaðurinn Þorvaldur Jónsson (f.1984) opnar sýninguna Hundurinn er til staðar í NORR 11 í dag klukkan 16:00. Sýningin er unnin með Listval og rauður þráður sýningarinnar er hundur að skíta. Blaðamaður hafði samband við Þorvald og fékk að forvitnast um sýninguna.
Þorvaldur hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér heima sem og erlendis og hafa verk hans verið sýnd víðs vegar um landið. Ásamt því að starfa sem myndlistarmaður er Þorvaldur einn af stofnendum Gallery Ports á Laugavegi. View this post on Instagram A post shared by LISTVAL (@listval_) Eins konar sögusvið Verk Þorvaldar búa yfir ævintýralegum blæ og segja má að þau séu eins konar sögusvið þar sem ýmsar atburðarrásir eiga sér stað á striganum. Má til dæmis sjá nakið fólk í hringdans, bófa sem er búinn að týna þýfinu sínu og málara sem stigið hafa í málningu og spora allt út eftir sig. „Helsti innblásturinn er örugglega Hvar er Valli bækurnar,“ segir Þorvaldur og bætir við: „Þá er ég ekki að tala um myndefnið heldur það að skapa sögusvið með einhverjum óljósum atburðarásum. Titlar verkana koma svo frá hlutum innan myndflatarins þannig að það er smá leikur í því að finna hlutinn sem myndin dregur nafn sitt af.“ Verk Þorvaldar eru eins konar sögusvið.Aðsend Rauði þráður þessarar sýningar er þó hundar að skíta. „Við fengum okkur hund fyrir um ári síðan og núna snýst allt um hann aðallega þegar maður er heimavinnandi. Dagurinn fer bara í að mála og fara út með hundinn svo að hann nái að gera þarfir sínar.“ View this post on Instagram A post shared by Þorvaldur Jónsson (@torvaldurjonsson) Kúkandi hundur og berskjöldun Titill sýningarinnar er vísun í verkið The Artist Is Present þar sem höfundurinn, Marina Abramović, sat gegnt gestum sýningarinnar og starði í augun á þeim. Þessi gjörningur hafði þau áhrif að margir gestir upplifðu einlægt augnablik með listakonunni, sumir brotnuðu jafnvel niður og grétu. Í fréttatilkynningu stendur að á sama hátt sé eitthvað mjög einlægt við að horfa í augun á kúkandi hundi, hann algjörlega berskjaldaður og óvarinn. Augnablik sem vert er að fanga. Sýningin stendur til 9. ágúst, 2022.
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“ Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals. 24. maí 2022 12:01 Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira
„Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“ Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals. 24. maí 2022 12:01