Handbolti

Þungur róður framundan fyrir Flensburg í Barcelona

Atli Arason skrifar
Teitur Örn Einarsson, leikmaður Flensburg, í leik gegn Dinamo Bucuresti í Meistaradeildinni fyrr á tímabilinu. 
Teitur Örn Einarsson, leikmaður Flensburg, í leik gegn Dinamo Bucuresti í Meistaradeildinni fyrr á tímabilinu.  Getty Images

Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensborg eru í slæmum málum eftir fjögurra marka tap á heimavelli gegn Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta, 29-33.

Teitur skoraði þrjú mörk úr sjö skotum í leiknum.

Flensborg á erfitt verkefni fyrir höndum en til þess að komast áfram í undanúrslit þurfa þeir nú að sækja a.m.k. fimm marka sigur í seinni leik liðanna sem fer fram næsta fimmtudag í Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×