Musk ætlar að kaupa fyrirtækið á 44 milljarða dala. Hann segist meðal annars vilja staðfesta auðkenni allra notenda, útrýma svokölluðum bottum, sjálfvirkum reikningum sem senda óumbeðin skilaboð, og auka málfrelsi á Twitter. Hann hefur verið sakaður um að vilja gefa nettröllum lausan tauminn á Twitter.
Sjá einnig: Musk íhugar að rukka vissa aðila fyrir notkun Twitter
Samkvæmt heimildum Reuters mun Musk taka við af Parag Agrawal, sem varð forstjóri í nóvember eftir að Jack Dorsey, stofnandi Twitter, steig til hliðar.
Fréttaveitan segir að Musk ætli að fjárfesta kaupin með því að taka lán og tryggja aðkomu fjárfesta. Musk er sagður ætla að taka 6,25 milljarða dala lán út á hlutabréf sín í Tesla, þrettán milljarða lán út á hlut sinn í Twitter og fá 27,25 milljarða í gegnum aðra fjárfesta.
Í frétt CNBC segir að Musk hafi tryggt sér 7,14 milljarða dala með aðkomu annarra fjárfesta.
Meðal þeirra eru prinsinn Alwaleed bin Talal, frá Sádi-Arabíu, rafmyntafyrirtækið Binance, sem stofnað var af Changpeng Zhao frá Kína og er nú með höfuðstöðvar í Caymaneyjum, fjárfestingafélagið Vy Capital frá Dúbaí, fasteignaauðjöfurinn Steven Witkoff, fjárfestirinn Larry Ellison og fleiri.
CNBC hefur eftir heimildarmönnum sínum að Musk hafi sagt mögulegum fjárfestum að tekjur Twitter væru of lágar og of margir væru að vinna hjá fyrirtækinu.
Reuters segir einhverja fjárfesta hafa áhyggjur af því að Musk ætli sér ekki að klára kaupin á Twitter. Fari svo þyrfti Musk að greiða milljarð dala til Twitter og fyrirtækið gæti þar að auki höfðað mál gegn honum.