Fótbolti

Haukar, FH, Augnablik og ÍA með stórsigra í Mjólkurbikarnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
FH-ingar unnu afar öruggan sigur í kvöld.
FH-ingar unnu afar öruggan sigur í kvöld. Vísir/Anton

Fjórir leikir fóru fram í Mjólkurbikar kvenna í kvöld þar sem Haukar, FH, Augnablik og ÍA unnu öll stórsigra.

Haukakonur unnu öruggan 3-0 útisigur gegn Fylki í Árbænum á meðan FH-ingar gjörsigruðu Gróttu á Seltjarnarnesi 7-0 þar sem Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoraði þrennu.

Þá unnu Skagakonur í ÍA afar öruggan 6-1 heimasigur gegn Fjölni og Augnablik átti ekki í vandræðum með Hamar frá Hveragerði, lokatölur 7-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×