Albert og félagar nálgast fall eftir dramatískt tap

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa máttu þola grátlegt tap í kvöld.
Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa máttu þola grátlegt tap í kvöld. Maurizio Lagana/Getty Images

Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa máttu þola 1-0 tap gegn Sampdoria í grannaslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Tapið þýðir að Genoa þarf í það minnsta þrjú stig úr seinustu þrem leikjunum til að halda sæti sínu í deildinni.

Albert hóf leik á bekknum en kom inn á sem varamaður eftir 55 mínútna leik. Þá höfðu heimamenn þegar tekið forystuna með marki frá Abdelhamid Sabiri um miðjan fyrri hálfleikinn.

Það var því ljóst að Albert og félagar þurftu á marki að halda til auka möguleika sína á að halda sæti sínu í deildinni.

Þegar komið var fjórar mínútur fram yfir venjulegan leiktíma fengu gestirnir í Genoa líflínu þegar Alex Ferrari handlék knöttinn innan vítateigs. Domenico Criscito fór á puntkinn fyrir Genoa, en hann lét Emil Audero verja frá sér.

Niðurstaðan varð því 1-0 sigur Sampdoria sem með sigrinum svo gott sem bjargaði sér frá falli. Albert og félagar sitja hins vegar í 19. sæti deildarinnar með 25 stig þegar liðið á þrjá leiki eftir, þremur stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira