Keita skaut Liver­pool á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkið í þann mund að verða að veruleika.
Sigurmarkið í þann mund að verða að veruleika. Chris Brunskill/Getty Images

Naby Keïta skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu þegar hann sýndi mikla yfirvegun eftir sendingu Diogo Jota. Keïta var á fleygiferð en tókst samt að færa boltann frá hægri fæti yfir á þann vinstri er hann fór framhjá Martin Dúbravka í marki Newcastle og lagði boltann í netið.

Leikmenn Newcastle voru bandbrjálaðir þar sem þeim fannst James Milner brotlegur í aðdraganda marksins.

Fleiri urðu mörkin ekki og Liverpool er þar með komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 82 stig. Manchester City er tveimur stigum á eftir með leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira