Dramatískur endurkomusigur AC Milan gegn Lazio

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Meistaratitillinn í augsýn.
Meistaratitillinn í augsýn. vísir/Getty

AC Milan tyllti sér á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með herkjum þegar þeir sóttu þrjú stig til Rómarborgar í kvöld þar sem þeir heimsóttu Lazio.

Ciro Immobile kom Lazio yfir snemma leiks eða á fjórðu mínútu þegar hann skoraði eftir undirbúning Sergej Milinkovic Savic. Lazio hélt forystunni út fyrri hálfleikinn.

Aðeins voru fimm mínútur liðnar af síðari hálfleik þegar Olivier Giroud jafnaði metin.

Zlatan Ibrahimovic kom inn af bekknum eftir rúmlega klukkutíma leik og hann lagði upp sigurmark leiksins fyrir Sandro Tonali þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og 1-2 sigur AC Milan staðreynd.


Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira