Markalaust hjá Brentford og Tottenham

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Eriksen mætti sínum gömlu félögum í dag.
Eriksen mætti sínum gömlu félögum í dag. vísir/Getty

Ekkert mark var skorað þegar Brentford fékk Tottenham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Tottenham á nú í harðri baráttu við erkifjendur sína í Arsenal um fjórða sætið sem gefur keppnisrétt í Meistaradeildinni og þurfa lærisveinar Antonio Conte á öllum stigum að halda í þeirri baráttu.

Harry Kane og félagar voru ekki upp á sitt besta í dag og átti Tottenham til að mynda ekki skot á mark Brentford.

Tottenham nú tveimur stigum á eftir Arsenal en Brentford siglir lygnan sjó í ellefta sæti deildarinnar með 40 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira