Viðskipti erlent

Musk getur ákveðið að gleypa eitruðu pilluna

Snorri Másson skrifar
Elon Musk vill eignast Twitter en hann á á brattann að sækja. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka, telur hann geta eignast samfélagsmiðilinn, en að varnir félagsins geti reynst erfiðar viðfangs.
Elon Musk vill eignast Twitter en hann á á brattann að sækja. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka, telur hann geta eignast samfélagsmiðilinn, en að varnir félagsins geti reynst erfiðar viðfangs. Getty/Rafael Henrique - Íslandsbanki

Fólk skiptist í fylkingar eftir afstöðu þess til áforma ríkasta manns heims um að kaupa Twitter. Stjórn fyrirtækisins reynir nú allt til að stöðva auðkýfinginn, Elon Musk.

Musk er alræmt ólíkindatól og því kom það fólki ekki endilega í opna skjöldu þegar hann keypti skyndilega 9.2% hlut í Twitter í byrjun mánaðar. En skömmu síðar kom næsta útspil. Musk gerði yfirtökutilboð til að kaupa hvern einasta hlut í samfélagsmiðlinum. Honum virðist alvara.

Twitter er stofnað árið 2006 og samfélagsmiðillinn er einn sá mikilvægasti í heimi. En ákvarðanir stjórnenda um að ritskoða eitt og annað í nafni heilbrigðs lýðræðis eru í auknum mæli umdeildar á meðal Bandaríkjamanna; samanber ákvörðunina um að banna Trump í aðdraganda síðustu forsetakosninga. 

Það þarf því ekki að koma á óvart að Bandaríkjamenn skiptist í tvennt þegar þeir heyra af áformum Musk. Í fréttabrotinu hér að neðan sjáum við fyrst innslög frá FOX, stöð sem er höll undir repúblikana, og næst CNN, stöð sem er höll undir demókrata.

„Hann getur keypt hvað sem hann vill“

Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka, hefur fylgst með tilraunum Musk til að kaupa Twitter og segir alls ekki útilokað að ríkasta manni heims takist ætlunarverk sitt.

„Hann á um 35.000 milljarða króna núna. Hann gæti rekið íslenska ríkið hérna næstu áratugina. En þegar við segjum hann á þetta, er hann ekki með þetta í rassvasanum. Þetta er bundið í hlutabréfum og það er kannski ólíklegt að hann muni vilja selja börnin sín, Tesla og SpaceX. En hvort hann geti þetta, jú hann getur keypt hvað sem hann vill,“ segir Björn. 

Það er mikið í húfi - en Twitter vill ekki leyfa Musk að kaupa sig. Stjórn fyrirtækisins hefur gripið til neyðarvarnar sem er kölluð eiturpillan í hlutabréfaviðskiptum.

„Þau eru að grípa í handbremsuna og þau eru að taka afstöðu til eins einstaklings og segja, þetta er ekki fjárfestir sem við viljum. Ef Elon Musk fer yfir 15% eða yfir það, eins og hann ætlar sér að gera, getur stjórnin ákveðið að fjölga hlutabréfum í fyrirtækinu sem verða eingöngu í boði fyrir núverandi hluthafa utan Elon Musk á afslætti,“ segir Björn.

Að fjölga hlutabréfum með þeim hætti myndi þynna út eignarhlut Musk, þannig að yfirtakan sem hann er að reyna yrði dýrari og dýrari, jafnvel þar til hún yrði fjárhagslega óraunhæf fyrir hann. 

„Ef hann hins vegar vill borga þetta yfirverð, gleypa þessa eitruðu pillu, þá getur hann það vissulega,“ segir Björn.

Haraldur Þorleifsson, íslenskur auðkýfingur og starfsmaður Twitter, hefur sett sig upp á móti sölunni til Musk - og sætt nokkrum ofsóknum frá áhangendum hans á netinu. Hann lýsti því í nýlegum þræði á Twitter hvað hann hefði lært á skömmum tíma um hörðustu fylgismenn Musk. 


Tengdar fréttir

Dómari segir Musk hafa logið um að taka Tesla af markaði

Dómari hefur komist að þeirri niðurstöðu að Elon Musk, auðugasti maður heims, laug þegar hann hélt því fram í tístum árið 2018 að hann hefði tryggt sér fjármögnun til að taka bílafyrirtækið Tesla af markaði. Hann sagðist ætla að kaupa öll hlutabréf félagsins á 420 dali á hlut.

Nota gamalt bragð til að grípa til varna gegn yfirtöku Musks

Forsvarsmenn Twitter hafa gripið til varna til að koma í veg fyrir mögulega yfirtöku auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlafyrirtækinu. Með það markmið hefur stjórn Twitter notast við gamalt bragð á hlutabréfamarkaðinum sem myndi gera hluti Musks, og annarra, lítils virði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×