XY áfram í Stórmeistaramótið Snorri Rafn Hallsson skrifar 11. apríl 2022 13:00 Stórskemmtilegt einvígi XY og Kórdrengja endaði með sigri XY.
Fjögur lið úr flokki hinna sigruðu á Áskorendamótinu fengu í gærkvöldi eitt tækifæri til viðbótar til að komast á Stórmeistaramótið í CS:GO sem hefst 23. apríl. Um fyrirkomulag mótsins má lesa betur hér, en hver viðureign er “best-af-3”. Á laugardagskvöldið höfðu Saga og Ten5ion komist áfram en Haukar og Samviskan fallið úr leik. Eftir stóðu því XY, Kórdrengir, Fylkir og BadCompany. Í kortavalinu völdu Kórdrengir Inferno og XY Ancient og eftir bönnin stóð Nuke eitt eftir sem úrslitakort. Leikur 1: Inferno XY hóf leik í vörn. Höfðu þeir mikla yfirburði í upphafi fyrri hálfleiks og náðu 5 lotu forystu snemma. Kórdrengir voru stefnulausir í aðgerðum sínum og þrátt fyrir að koma auga á veikleika í vörn XY náði liðið ekki að nýta sér þá og staðan því 11–4 fyrir XY í hálfleik. Ekki var varnarleikur Kórdrengja upp á marga fiska, náðu þeir einungis einni lotu áður en XY lokaði leiknum 16–5. Leikur 2: Ancient Blazter fór á kostum í spretti þar sem Kórdrengir náðu fyrstu 5 lotunum. Þá var komið að XY að leika sama leik og voru þeir því ekki lengi að jafna í sókninni. Þá skiptust liðin á lotum og var leikurinn í járnum allt þar til Kórdrengjum tókst að vinna tvær lotur í röð og senda XY í spar í stöðunni 13–11, og fylgja því eftir með tveim lotum til viðbótar. Sigurinn var svo gott sem kominn í höfn hjá Kórdrengjum. XY var þó ekki á því máli og náði að minnka muninn í 15–14. Kórdrengir fóru þá sem eldur í sinu um kortið, komu sprengjunni hratt fyrir og tryggja sér sigurinn, 16–14. Leikur 3: Nuke Staðan í einvíginu var því jöfn og þurfti þriðja leikinn til að skera úr um sigurvegara. . Aftur fóru Kórdrengir vel af stað, unnu hnífalotuna og fyrstu tvær eftir það. XY svöruðu þá um hæl og jöfnuðu og komust yfir með snyrtilegum lotum og öflugri sókn. XY hélt forskotinu út hálfleikinn staðan í hálfleik 9–6 fyrir XY. Ekkert lát var á yfirburðum XY sem hleypti Kórdrengjum hvergi nærri sér og raðaði inn lotunum. Lokastaðan í leiknum 16–7 fyrir XY og 2–1 fyrir XY í einvíginu. Kórdrengir eru því dottnir úr leik en XY fara sáttir inn í Stórmeistaramótið. Sýnt verður frá mótinu á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Kórdrengir Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira