Segir af sér eftir að upp komst um samband við mun yngri konu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 9. apríl 2022 15:41 Enoksen hér til vinstri ásamt Støre forsætisráðherra og Anniken Huitfeldt utanríkisráðherra. EPA/Heiko Junge Varnarmálaráðherra Noregs, Odd Roger Enoksen, hefur sagt af sér ráðherraembætti eftir að í ljós kom að hann átti í sambandi við sér mun yngri konu frá árinu 2005. Enoksen var þá fimmtugur en konan aðeins átján ára.
Frá þessu greinir Verdens Gang og segir að sambandið hafi hafist þegar konan var í framhaldsskóla. Hún hafi fyrst hitt Enoksen í skólaferðalagi í norska Stórþingið, þegar hann var orkumálaráðherra í ríkisstjórn Jens Stoltenberg. Stuttu síðar hafi samband þeirra tveggja hafist, sem konan segir að hafi verið kynferðislegt og stafað af gríðarlegum valdamismun milli þeirra tveggja. Enoksen hefur viðurkennt að hafa átt í sambandi við konuna en neitar því að hafa notfært sér valdastöðu sína gagnvart konunni. Konan hefur sagt frá því að hún hafi hitt Enoksen minnst tólf sinnum á skrifstofu hans á tímabilinu frá ágúst 2006 til október 2007, auk þess sem þau hafi hist nokkrum sinnum í íbúð ráðherrans og í tvö skipti á hóteli. Konan segir að á sumum fundanna hafi verið stundaðar kynferðislegar athafnir. Þessu neitar Enoksen. „Hún kom í ráðuneytið, kannski þrisvar eða fjórum sinnum. Stundum var kynferðislegur blær í samræðum okkar, en engin líkamleg snerting,“ hefur VG eftir Enoksen. Þá er haft eftir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, að afsögn Enoksen hafi verið nauðsynleg og honum hafi ekki verið kunnugt um samband hans við konuna. Sagði hann að ef svo væri hefði Enoksen ekki verið skipaður ráðherra í ríkisstjórn hans.
Noregur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira