Makamál

Fyrsta blikið: Vildi víkinga­legan öryggis­vörð og fékk ósk sína upp­fyllta

Ása Ninna Pétursdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Freyr og Vala áttu vægast sagt rómantískt blint stefnumót í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2. 
Freyr og Vala áttu vægast sagt rómantískt blint stefnumót í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2.  Stöð 2

Hún vildi víkingalegan öryggisvörð og hann stelpu sem er opin og til í ævintýri, Freyr og Vala voru annað tveggja para í öðru þætti Fyrsta bliksins. 

Það kviknuðu óneitanlega einhverjir blossar hjá pörunum í síðasta þætti stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið en þáttur númer þrjú verður svo á dagskrá í kvöld klukkan 18:55. 

Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)

Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þátt tvö, en hafa enn ekki séð hann, þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.

....

Freyr og Vala

Þau framkvæma það sem þeim dettur í hug, dreymir báðum um að ferðast og búa erlendis, elska Þórsmörk og eru alls ekkert að stressa sig á áliti annarra. 

Eins og sjá má í klippu hér fyrir neðan var stefnumótið þeirra í þættinum vægast sagt vel heppnað. 

Klippa: Fyrsta blikið: Hún vildi víkingalega öryggisvörð og fékk

Þó svo að landafræðilega sé kannski langt á milli Freys og Völu eru þau enn í sambandi og njóta þess að kynnast og heillast. 

Freyr og Vala hafa hist á nokkrum stefnumótum síðan þættirnir voru teknir upp í febrúar en Vala er búsett á Austfjörðum og Freyr á Selfossi. 

Jónína og Bjarki 

Bjarki er mikil hestamaður sem prjónar ekki einungis á hestum en hann gerði sér lítið fyrir og mætti með heimaprjónaða sokka og færði Jónínu á blindu stefnumóti. 

Jónína og Bjarki eiga það sameiginlegt að vera miklir jafnréttissinnar, mikið fjölskyldufólk og bæði eiga þau löng hjónabönd að baki. 

Jónína og Bjarki stigu stórt skref þetta kvöld og eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan nutu þau sín vel á stefnumótinu. 

Klippa: Fyrsta blikið: Færði dömunni heimaprjónaða sokka á blindu stefnumóti

Jónína og Bjarki taka hlutunum rólega og þó svo að þau hafi enn ekki hist á stefnumóti númer tvö eru þau enn í sambandi og segjast bæði vilja reyna á það að hittast aftur og sjá hvert það leiðir. 


Lagalistar úr þáttunum á Spotify

Tónlistin úr þáttunum hefur vakið töluverða athygli og nú verður hægt að nálgast lögin úr hverjum þætti inn á Spotify síðu Fyrsta bliksins.

Þeir sem vilja koma sér í réttu stemninguna fyrir kvöldið geta nálgast lagalista úr þætti tvö og eitt hér fyrir neðan.


Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. 

Aðdáendur Fyrsta bliksins geta fylgst með skemmtilegu aukaefni á Instagram síðu þáttarins @fyrstablikid.

Þættirnir eru átta talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55. Í kjölfarið verða allir þættirnir aðgengilegir á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.


Tengdar fréttir

Blint stefnumót Skúla og Birtu endaði með bíómyndakossi

Þau elska bæði Harry Potter, spila sömu tölvuleiki, segjast bæði vera Nexus-nördar og horfa á sömu kvikmyndirnar. Birta Rós og Skúli voru eitt tveggja para í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið síðasta föstudagskvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×