Samstarf

Atvinnutækifæri og uppbygging innviða

Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun fjalla um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og traustra innviða í Reykjavík út frá sjónarhóli Reykjavíkurborgar og skipulags.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun fjalla um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og traustra innviða í Reykjavík út frá sjónarhóli Reykjavíkurborgar og skipulags. Vilhelm

Reykjavíkurborg stendur fyrir opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur um uppbyggingu innviða, nýsköpun, skapandi greinar og atvinnutækifæri í borginni, föstudaginn 8. apríl kl. 9 – 11.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun fjalla um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og traustra innviða í Reykjavík út frá sjónarhóli Reykjavíkurborgar og skipulags.

Farið verður yfir stóru myndina varðandi uppbyggingu innviða og atvinnusköpun en þar eru víða jákvæð teikn á lofti þegar kemur að skapandi greinum, þróun verslunar og atvinnustarfsemi.

Á fundinum verður m.a. leitast við að svara eftirfarandi spurningum.

  • Hvar verða helstu atvinnusvæðin í borginni í náinni framtíð?
  • Er hægt að byggja upp öflugan tölvuleikjaiðnað í Reykjavík?
  • Hvað er að gerast í jarðhitagarðinum?
  • Er nægt atvinnuhúsnæði í miðborginni?

Fyrirlesarar úr atvinnulífinu fjalla um mikilvæg verkefni sem nú þegar eru orðin að veruleika og möguleikana sem þekking, reynsla og hugmyndaflug geta skapað til aukningar á útflutningstekjum og verðmætum störfum í borginni.

Í lok fundar verður áhugasömum boðið í vettvangsferð á þróunarreit í nágrenni Ráðhússins.

Fundurinn verður í Tjarnarsal, Ráðhúss Reykjavíkur, frá kl. 9 – 11. og í beinu streymi á vef Reykjavíkurborgar

Öll velkomin.

Dagskrá

Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur opnar fundinn

  • Athafnaborgin: uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. ​
  • Jarðhitagarður Orku náttúrunnar,Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar.
  • Tækifæri í tölvuleikjaiðnaði í Reykjavík, Þorsteinn Högni Gunnarsson forstjóri Mainframe
  • Myndband - Athafnasvæði á Esjumelum heimsótt
  • Hvar er ríkið að byggja í borginni?, Þröstur Söring, framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda hjá Framkvæmdasýslunni /Ríkiseignum.
  • Heilbrigðisvísindagarðar rísa í Reykjavík, Bjargey Björgvinsdóttir, arkitekt og verkfræðingur hjá NLSH.
  • Græni kassinn, Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta og þróunarstjóri hjá Sorpu​.
  • Landsbankinn í miðborginni - tækifæri, Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt hjá Landsbankanum
  • Myndband - Miðborgin á tímamótum
  • Atvinnuhúsnæði í Kvosinni og nágrenni – staðan og tækifærin, Samúel Torfi Pétursson, skipulagsverkfræðingur hjá VSÓ.
  • Atvinnu- og nýsköpunarstefna Reykjavíkur, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs.

Fundarstjóri er Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona.​





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×