Greint var frá því í vikunni að Musk hafði eignast 9,2 prósent hlut í Twitter. Alls eignaðist hann 73 milljónir hluta fyrir um 2,9 milljarða dollara.
Gengi hlutabréfa Twitter ruku upp eftir að Musk tilkynnti um kaupin. Hafa þau hækkað um tæp þrjátíu prósent síðan þá.
Washington Post greindi hins vegar frá því í gær að Musk hafi sent tilkynningu um að hann hafi eignast stóran hlut of seint miðað við gildandi lög.
Hefði átt að greina frá kaupunum í síðasta lagi 24. mars
Líkt og á Íslandi eru í gildi lög í Bandaríkjunum sem gera fjárfestum skylt að tilkynna það til kauphallar þegar eignarhlutur þeirra í skráðum félögum á hlutabréfamarkaði fer yfir fimm prósent.
Fjárfestar hafa tíu daga til að senda inn slíka tilkynningu samkvæmt bandarískum lögum.
Samkvæmt tilkynningunni sem Musk sendi þegar greint var frá 9,2 prósent hlut hans í Twitter eignaðist Musk yfir fimm prósent hlut í samfélagsmiðlinum þann 14. mars síðastliðinn. Hann hefði því átt að senda tilkynninguna í síðasta lagi þann 24. mars.
Í millitíðinni hélt Musk áfram að kaupa hlutabréf í Twitter þar sem meðalverð á hverju hlutabréfi í kaupunum var um 39 dollarar. Það var ekki fyrr en Musk var kominn með 9,2 prósent eignarhlut að hann sendi tilkynningu þar sem kaupin voru opinberuð, þann 4. apríl síðastliðinn.
Hlutabréfaverðið fór á flug þegar greint var frá kaupunum
Við tilkynninguna tók hlutabréfaverð Twitter kipp og hefur það farið hækkandi í vikunni. Stendur það nú í 50,77 dollurum á hlut, um þrjátíu prósent hækkun.
Í frétt Washington Post er rætt við sérfræðing sem telur að Musk hafi hagnast um 156 milljónir dollara, um tuttugu milljarða króna, með því að tilkynna of seint um að hann hafi farið yfir fimm prósent eignarhlut, líkt og lög kveða á um.
„Ég átta mig ekki á því hvað hefur farið í gegnum huga hans. Vissi hann eða vissi hann ekki að hann var að brjóta lög?“ er haft eftir David Kass, prófessor í fjármálum við viðskiptafræðideild Háskólans í Maryland.
Möguleg sekt aðeins dropi í hafið
Reikna má með að ef Musk hefði tilkynnt um fimm prósent eignarhlutinn hafi hlutabréfaverð Twitter hækkað, og því hefði það verið kostnaðarsamara fyrir Musk, sem trónir á toppi Forbes yfir ríkustu auðjöfra heims, að stækka við hlut sinn í samfélagsmiðlinum.
Í umfjöllun Washington Post kemur fram að afleiðingarnar verði að öllum líkindum litlar fyrir Musk, yfirvöld í Bandaríkjunum geti sektað hann um nokkur hundruð þúsund dollar.
Er það aðeins dropi í hafið fyrir Musk en auðævi hans eru metin á 219 milljarða dollara.