Tilþrif vikunnar: K-DOT klárar lotuna fyrir Fylki og Clvr „clutchmaster“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. mars 2022 23:00 K-DOT og Clvr eiga tilþrif vikunnar í Ljósleiðaradeildinni. Við höldum áfram að sýna tilþrif vikunnar hér á Vísi og í þetta sinn eru það þeir K-DOT, leikmaður Fylkis, og Clvr, leikmaður Dusty, sem eiga sviðið.
Líkt og áður eru tilþrif vikunnar í boði Elko, en fyrra myndbrotið sem við sjáum er af K-DOT í viðureign Fylkis og Ármanns síðastliðinn þriðjudag. Það voru liðsmenn Ármanns sem fóru með sigur af hólmi 16-13, en þrátt fyrir það átti K-DOT, leikmaður Fylkis, tilþrif kvöldsins. Viðureignin fór fram á kortinu de_nuke og þegar Fylkismenn voru undir, 14-9, kláraði K-DOT lotuna með því að taka fjóra af fimm meðlimum Ármanns út. Klippa: Elko tilþrif vikunnar: K-DOT klárar lotuna fyrir Fylki Síðara myndbrotið sem við sjáum er af Clvr í viðureign Dusty og Þórs á kortinu de_mirage. Dusty og Þór sitja í fyrsta og öðru sæti deildarinnar, en Dusty hafði nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir viðureignina. Það var þó ekki að sjá að liðsmenn Dusty væru orðnir saddir því þeir unnu viðureignina örugglega, 16-6, og Clvr átti bestu tilþrif kvöldsins þegar hann kom Dusty í 3-1 þegar hann var einn á móti tveimur eftir. Tómas Jóhannsson lýsti atburðarásinni og var vægast sagt spenntur yfir því sem hann sá á skjánum hjá sér. Klippa: Elko tilþrif vikunnar: Clvr clutchmaster
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Dusty Fylkir Þór Akureyri Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Enski boltinn Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn