Innlent

Listi Sjálf­stæðis­manna á Sel­tjarnar­nesi sam­þykktur

Atli Ísleifsson skrifar
Þór Sigurgeirsson leiðir lista Sjálfstæðismanna.
Þór Sigurgeirsson leiðir lista Sjálfstæðismanna. Aðsend

Tillaga kjörnefndar sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi um framboðslista Sjálfstæðisflokksins vegna sveitarstjórnarkosninganna í maí var samþykkt einróma á fulltrúaráðsfundi félaganna í gærkvöldi.

Þór Sigurgeirsson leiðir listann en hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í febrúar.

Ragnhildur Jónsdóttir hagfræðingur og varabæjarfulltrúi og Magnús Örn Guðmundsson forseti bæjarstjórnar skipar þriðja sæti listans.

Listinn er þannig skipaður:

  1. Þór Sigurgeirsson, sölu- og verkefnastjóri
  2. Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur og varabæjarfulltrúi
  3. Magnús Örn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar
  4. Svana Helen Björnsdóttir, verkfræðingur
  5. Dagbjört Oddsdóttir, lögmaður
  6. Hildigunnur Gunnarsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur
  7. Örn Viðar Skúlason, hagverkfræðingur og fjárfestingastjóri
  8. Grétar Dór Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
  9. Hannes Tryggvi Hafstein, framkvæmdastjóri
  10. Guðmundur Helgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri og ráðgjafi
  11. Hákon Róbert Jónsson, verkefnastjóri
  12. Inga Þóra Pálsdóttir, háskólanemi
  13. Guðmundur Jón Helgason, fv. flugumsjónarmaður
  14. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×