Viðskipti innlent

Sex milljóna króna hækkun á innan við viku

Eiður Þór Árnason skrifar
Stofa með parketi á gólfi og fallegum útglugga.
Borðstofa með útgengi út á rúmgóðar svalir.
Stofa með parketi á gólfi og fallegum útglugga. Borðstofa með útgengi út á rúmgóðar svalir. Fjárfesting

Ásett verð þriggja herbergja blokkaríbúðar í Kópavogi hækkaði um sex milljónir króna á fimm daga tímabili. Fasteignasali segir að aðstæður hafi breyst hjá seljenda sem vilji reyna fá hærra verð fyrir eignina.

Um er að ræða 91 fermetra íbúð á jarðhæð að Sæbólsbraut 26 sem byggð var árið 1985. Eignin var auglýst til sölu 28. febrúar síðastliðinn fyrir 54,9 milljónir króna  Skömmu síðar var auglýsingin tekin út og birtist hún aftur þann 5. mars. Þá var ásett verð komið upp í 60,9 milljónir króna en fasteignamat er 45,2 milljónir.

„Mér datt í hug að einhver blaðamaður myndi hringja í mig út af þessu,“ segir Óskar Þór Hilmarsson, fasteignasali hjá Fjárfestingu fasteignasölu, léttur í bragði. „Þetta er sárasaklaust, það er enginn að kaupa og selja þetta á nokkrum dögum.“ 

Eldhúsið er búið hvítri innréttingu, parketi á gólfi og borðkróki.Fjárfesting

Óskar segir mörg tilboð hafa borist í eignina í fyrra skiptið en ekkert þeirra hafi verið samþykkt. 

„Seljandinn þarf að fá ákveðið verð sem hún kannski náði ekki þarna fyrst svo þá breytast aðstæður og hún ákveður að prófa þetta.“ 

Opinber gögn sýna að íbúðin við Sæbólsbraut 26 var síðast seld á 36,6 milljónir króna í nóvember 2017. Seljist hún nú á ásettu verði nemur verðhækkunin 66,4 prósentum á innan við fjórum og hálfu ári. 

Ekki er byrjað að taka við tilboðum í seinni lotu en Óskar segir það enn algengt að fólk þurfi að bjóða hærra en ásett verð til að tryggja sér íbúðir. Mikill skortur sé á eignum líkt og ítarlega hafi verið fjallað um seinustu mánuði en mögulega séu merki um að markaðurinn sé eitthvað aðeins farinn að róast. 

Hér má sjá annað tveggja svefnherbergja.Fjárfesting

Í sölulýsingu kemur fram að um sé að ræða fallega þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð. Íbúðin sjálf sé 78,8 fermetrar en sérgeymsla í kjallara 12,2 fermetrar að flatarmáli. 

Einnig segir að ráðist hafi verið í miklar framkvæmdir á fjölbýlishúsinu fyrir um tveimur árum þegar það var málað að utan, gler og gluggar endurnýjaðir á göflum, ásamt því að þak var lagfært og endurnýjað.

Opið er á milli stofunnar og eldhússins.Fjárfesting
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili og upphengdu salerni.Fjárfesting
Hitt svefnherbergið virðist hafa verið nýtt sem gestaherbergi. Fjárfesting
Íbúðin er við Sæbólsbraut 26 í Kópavogi.Fjárfesting

Tengdar fréttir

Með greiðslumat og útborgun en eiga samt ekki séns

Hjón sem hafa árangurslaust boðið í íbúðir á höfuðborgarsvæðinu síðasta eina og hálfa árið segja fasteignamarkaðinn vonlausan fyrir venjulegt fólk. Íbúð sem þau buðu í fyrir þremur mánuðum var sett aftur á sölu í gær og var þá orðin tíu milljónum dýrari.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×