Viðskipti innlent

Ráðin til sjó­baða Skúla í Hvamms­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Fríða Jónsdóttir, Hilmar Þór Bergmann og Gróa Jónsdóttir.
Fríða Jónsdóttir, Hilmar Þór Bergmann og Gróa Jónsdóttir. Aðsend

Hilmar Þór Bergmann, Fríða Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir og Guðmundur Guðjónsson hafa öll verið ráðin til starfa til að vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði.

Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur og fyrrverandi eigandi WOW air, hefur unnið að stofnun sjóbaðanna síðustu ár, en stefnt er að því að þau opni í sumar. Auk sjóbaða er stefnt að því að þar verði önnur afþreying og þjónusta – gistiaðstaða og veitingastaður.

Í tilkynningu segir að Hilmar Þór Bergmann muni gegna stöðu hótel- og rekstrarstjóra, Fríða Jónsdóttir sölu- og markaðsstjóra, Gróa Jónsdóttir stöðu aðalbókara og Guðmundur Guðjónsson stöðu umsjónarmanns kerfa og fasteigna.

„Hilmar ber ábyrgð á daglegum rekstri í Hvammsvík. Hann er með háskólagráðu í Hótel- og Ferðamannastjórnun frá César Ritz í Sviss og víðtæka reynslu af ferðaþjónustu síðastliðin 12 ár. Hilmar kemur til starfa í Hvammsvík eftir tæp 10 ár við hótelstjórnun í London, nú síðast sem hótelstjóri Radisson Blu Edwardian Grafton við Tottenham Court Road. Einnig hefur hann stýrt Radisson Blu Edwardian Sussex hótelinu við Marble Arch ásamt því að vera framkvæmdastjóri miðlægs þjónustusviðs hjá Edwardian Hotels London.

Fríða sér um uppbyggingu vörumerkisins og markaðssetningu. Hún lagði stund á viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði í Háskóla Íslands og Edith Cowan University í Ástralíu og er með Mastersgráðu frá London School of Economics. Fríða vann að þróun, uppbyggingu og stýringu vörumerkja á alþjóðavísu hjá Össuri í meira en áratug, þar af sem markaðsstjóri í Asíu í 6 ár. Síðastliðin tvö ár hefur Fríða starfað sem markaðsstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kara Connect.

Gróa ber ábyrgð á bókhaldi, launavinnslu, innheimtu og innkaupum. Hún lauk námi sem viðurkenndur bókari árið 2006, auk viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2021. Hún hefur víðtæka reynslu af bókhalds- og skrifstofustörfum, m.a. hjá Brynju Hússjóði, Vatnajökulsþjóðgarði, Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Mennta- og menningamálaráðuneyti.

Guðmundur hefur umsjón með kerfum, dælustöðvum og fasteignum í Hvammsvík. Hann er vélvirki að mennt, hefur rekið eigin stjálsmiðju og unnið fyrir byggingamarkaðinn. Auk þess hefur hann talsverða reynslu af nýtingu jarðvarma, sem kemur til með að nýtast vel við uppbyggingu sjóbaðanna í Hvammsvík,“ segir í tilkynningunni.

Skúli Mogensen.Vísir/Vilhelm

Náttúruperla í miðjum Hvalfirði

Haft er eftir Skúla Mogensen, framkvæmdastjóri Hvammsvíkur, að íslensk náttúra í öllu sínu veldi sé einstök og að hann sé sannfærður um að ferðaþjónustan á Íslandi muni halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum. 

„Hvammsvík er náttúruperla í miðjum Hvalfirðinum og ég hlakka til að byggja hana upp sem áfangastað, bæði fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn, með þessu frábæra og fjölbreytta teymi. Markmið okkar og sérstaða er að setja náttúruna og umhverfið í fyrsta sæti og öll upplifun mun byggjast á því. Gestir munu njóta í heitum náttúrulaugum bókstaflega í fjöruborðinu, sem sumar hverjar birtast og hverfa á víxl þar sem Atlantshafið flæðir í og úr laugunum. Þær verða þannig misheitar, allt frá 40C niður í hitastig sjávar.”


Tengdar fréttir

Skúli bauð Grímu að fara frá sér í kjöl­far falls WOW air

Skúli Mogensen, fyrrum forstjóri WOW air, segist þakklátur fjölskyldu sinni í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Hann hafi orðið líkamlega og andlega gjaldþrota í kjölfar falls flugfélagsins og þakkar fjölskyldu sinni fyrir að hafa komið í veg fyrir að hann legðist í langvarandi þunglyndi.

Lóðirnar hans Skúla í Hvammsvík flugu út

Vel virðist hafa gengið hjá Skúla Mogensen að selja lóðirnar þrjátíu sem hann setti á sölu í Hvammsvík í Hvalfirði, þar sem hann vinnur nú að uppbyggingu ferðaþjónustu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×