Viðskipti erlent

Brott­rekstur Rússa úr heims­hag­kerfinu hafi gríðar­leg á­hrif

Árni Sæberg skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. vísir/vilhelm

Seðlabankastjóri gerir ráð fyrir að stríðið í Úkraínu mun hafa mjög mikil áhrif á hagkerfið hér á landi og víða um heim. Skammtímaáhrif séu strax komin í ljós. Hins vegar sé Rússland fremur fátækt land sem hafi ekki efni á langvarandi hernaði.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fór yfir áhrif stríðsins í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann tók fram að heimsfaraldurinn hafi haft miklu meiri og varanlegri áhrif en gert hafi verið ráð fyrir. Nú megi búast við enn frekari áhrifum vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

„Stríðið mun held ég líka hafa mjög mikil áhrif og við sjáum að skammtímaáhrifin eru hækkun á hrávöruverði. Það er orðað þannig að Rússland er land á stærð við Frakkland sem lifði á því að selja hrávörur úr Síberíu, Síbería er náttúrulega gríðarlega ríkt land. Að kippa þeim út úr heimshagkerfinu hefur gríðarleg áhrif. Ekki bara á olíu og gas heldur eru ýmsir málmar sem þeir framleiða. Ég held það sé miklu meiri breyting en það af því að núna er Pútín og fólkið í kringum hann búið að komast upp með mjög marga hluti í gegnum tíðina,“ segir seðlabankastjóri.

Stríðið hafi aðeins staðið yfir í ellefu daga og óvíst sé hvað muni gerast næst.

„Eins og ég sé það að þá Úkraínumenn eru 44 milljónir og Rússar geta ekki hersetið þetta land. Rússland er í sjálfu sér fátækt land en hins vegar með mjög öflugan her, það er erfitt fyrir Rússa að halda úti langvarandi hernaði. Þeir hafa í raun og veru ekki efni á því. Efnahagslegu áhrifin eru að við sjáum hærra olíu- og gasverð. Það hefur áhrif á heimilin í Evrópu, við föttum það ekki á Íslandi því við erum með hitaveitu eða rafmagn sem við framleiðum sjálf. Þetta eru verulegir peningar fyrir evrópsk heimili. Það mun auka verðbólguna úti og draga úr hagvexti,“ segir hann.

Hins vegar bendi flest til þess að fyrirtæki í Evrópu bregðist við sem muni hvetja áfram atvinnulífið til skemmri tíma.

Þeir Ásgeir og Kristján Kristjánsson ræddu áhrif stríðsins í Úkraínu í Sprengisandi í morgun og heyra má umræðuna í spilaranum hér að neðan:





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×