Innlent

Stjórnvöld hafa ekki þegið 450 milljóna króna framlag Krabbameinsfélagsins til uppbyggingar nýrrar dagdeildar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ekki er gert ráð fyrir deild blóð- og krabbameinslækninga í áformum um nýjan Landspítala.
Ekki er gert ráð fyrir deild blóð- og krabbameinslækninga í áformum um nýjan Landspítala. Vísir/Vilhelm

Húsnæðismál blóð- og krabbameinslækninga á Landspítalanum eru í miklum ólestri en þrátt fyrir þetta hafa stjórnvöld enn ekki gengið að tilboði Krabbameinsfélagsins um 450 milljóna króna framlag til úrbóta.

Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.

Þar er meðal annars rætt við Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, sem segir fjárframlagið jafngilda þriðjungi þeirrar upphæðar sem það myndi kosta að ljúka við frágang svokallaðrar K-byggingar við Hringbraut og flytja þangað nýja dagdeild blóð- og krabbameinslækninga.

Dagdeildin í núverandi mynd er löngu spurning, segir Halla en ekki er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir blóð- og krabbameinsdeild á nýjum Landspítala. 

Halla segir viðræður Krabbameinsfélagsins og stjórnvalda um málið hafa staðið yfir í um tvö ár en eftir fund með nýjum heilbrigðisráðherra í ársbyrjun, hafi félagið fengið þau svör að heildarendurskoðun á húsnæði spítalans stæði yfir. 

Ákvörðun um framhaldið yrði byggð á þarfagreiningu sem myndi fara fram í kjölfarið.

Agnes Smáradóttir, yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítalanum, og Signý Vala Sveinsdóttir, yfirlæknir blóðlækninga, eru báðar fylgjandi hugmyndum Krabbameinsfélagsins.

„Aðstaðan er algjörlega óviðunandi, bæði fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk,“ segir Signý. „Við styðjum málið heilshugar,“ segir Agnes.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×