Harri ætlaði að hætta í sumar en var rekinn Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2022 10:46 Halldór Harri Kristjánsson starfaði fyrir HK í fjögur ár. Vísir/Bára Dröfn Eftir að hafa sagt frá því í viðtali í byrjun vikunnar að hann myndi hætta sem þjálfari kvennaliðs HK í handbolta í sumar hefur Halldór Harri Kristjánsson nú verið rekinn frá félaginu.
Harri, eins og hann er kallaður, sagði við Handbolti.is á mánudag að hann hefði ákveðið að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum og hætta þjálfun HK eftir tímabilið, til að taka sér frí frá þjálfun. Nú er hins vegar orðið ljóst að Harri hættir þegar í stað því HK sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis. „Stjórn handknattleiksdeildar HK hefur ákveðið að ljúka samstarfi sínu við Halldór Harra Kristjánsson og hefur hann látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs HK. Harri hafði ákveðið að láta staðar numið að loknu tímabilinu en það var einhugur hjá stjórn að breytinga væri þörf á þessum tímapunkti. HK vill þakka Harra kærlega fyrir vel unnin störf á þeim 4 árum sem hann hefur starfað fyrir félagið,“ segir í yfirlýsingu HK. Síðasti leikur HK undir stjórn Harra var því á miðvikudag þegar liðið tapaði 31-27 á heimavelli gegn KA/Þór. Liðið er í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar með níu stig eftir fimmtán leiki, fimm stigum á eftir næstu liðum en í öruggri fjarlægð frá stigalausu liði Aftureldingar sem er neðst.
Olís-deild kvenna HK Mest lesið Túfa rekinn frá Val Íslenski boltinn Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Íslenski boltinn „Varnarleikurinn er bara stórslys“ Enski boltinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Formúla 1 Hljóp í tólf klukkutíma rifbeinsbrotinn Sport Setja fjórtán milljarða í kvennadeildina Fótbolti Hárið í hættu hjá United manninum Enski boltinn Stefán Kári og Bjarki Fannar tóku báðir Íslandsmet af Arnari Péturs Sport Blaðamannafundur KSÍ: Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum Fótbolti Veðmál rædd í Körfuboltakvöldi: „Bara ævintýralega heimskulegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Donni og félagar björguðu stigi undir lokin Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Guðjón Valur og lærisveinar hársbreidd frá því að vinna Kiel Hlakka til að sjá Viktor Gísla aftur og senda honum skilaboð Neyddar í sömu stöðu og Ísland og límdu melónur á skóna Hatar hvítu stuttbuxurnar Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Magdeburg komst örugglega áfram í sextán liða úrslitin Íslensku strákarnir áberandi í Evrópudeildinni „Stærri og sterkari en liðin sem við þekkjum hérna heima“ Viktor til liðs við frænda sinn og bróður Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Kom að fjórtán mörkum í stórsigri á Leipzig Sjá meira