Viðskipti innlent

Skipulagsbreytingar hjá Landsvirkjun á sviði sölu og þjónustu

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Valur Ægisson, Dagný Ósk Ragnarsdóttir og Úlfar Linnet munu leiða viðskiptastýringu, viðskiptagreiningu og viðskiptaþjónustu Landsvirkjunar.
Valur Ægisson, Dagný Ósk Ragnarsdóttir og Úlfar Linnet munu leiða viðskiptastýringu, viðskiptagreiningu og viðskiptaþjónustu Landsvirkjunar.

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Landsvirkjun í hópi stjórnenda á sviði sölu og þjónustu hjá fyrirtækinu en nýir forstöðumenn hafa verið ráðnir. Að því er kemur fram í tilkynningu um málið er um að ræða forstöðumenn viðskiptastýringar, viðskiptagreinar og þróun markaða, og viðskiptaþjónustu.

Valur Ægisson hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptastýringar en hann hefur starfað hjá Landsvirkjun frá árinu 2012 og var síðast forstöðumaður viðskiptagreiningar og þróunar markaða. Áður en hann kom til Landsvirkjunar starfaði hann í fjármálageiranum. 

Valur hefur undanfarin ár komið að flestum raforkusamningum fyrirtækisins undanfarin ár, unnið að þróun vöruframboðs og komið að stefnumarkandi verkefnum. Hann er verkfræðingur með bakkalár gráðu í iðnaðarverkfræði og masters gráðu í rekstrarverkfræði.

Dagný tekur við af Vali

Dagný Ósk Ragnarsdóttir tekur við starfi Vals sem forstöðumaður viðskiptagreiningar og þróunar markaða en áður starfaði hún sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu hjá fyrirtækinu og þar áður sinnti hún stöðu sérfræðings í fjarstýringu fyrirtækisins. 

Áður en hún hóf störf hjá Landsvirkjun starfaði hún meðal annars við rannsóknir á sviði heilsuhagfræði og sem hugbúnaðarsérfræðingur í fjármálalausnum. Hún er með bakkalár gráður í hagfræði og tölvunarfræði. 

Úlfar leiðir viðskiptaþjónustuna

Að lokum mun Úlfar Linnet áfram gegna stöðu forstöðumanns viðskiptaþjónustu en hann hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum innan Landsvirkjunar og starfaði í rúmlega tíu ár sem forstöðumaður rannsóknardeildar á þróunarsviði áður en hann flutti sig árið 2019 yfir í greiningadeild markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs. 

Hann hefur sömuleiðis starfað fyrir hönd Landsvirkjunar sem stjórnarmaður hjá CEATI/HOPIG 2018 til 2019. Í viðskipaþjónustu leiðir Úlfar áframhaldandi þróun á viðmóti raforkukaupa hjá Landsvirkjun. Hann er með bakkalár gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði og lauk verkfræðinámi með áherslu á bestun og tölfræði. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×