Viðskipti innlent

Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti um 0,75 prósentur

Atli Ísleifsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr tveimur prósentum í 2,75 prósent.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Þar segir að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt sé í febrúarhefti Peningamála hafi hagvöxtur verið um 1 prósentu meiri á síðasta ári en spáð var í nóvember eða um 4,9 prósent. 

„Spáð er svipuðum hagvexti í ár. Störfum hefur haldið áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og er áætlað að framleiðsluslakinn sem myndaðist í kjölfar COVID-19-farsóttarinnar sé horfinn. Óvissa er hins vegar enn mikil.

Verðbólguhorfur hafa versnað töluvert frá síðasta fundi nefndarinnar og mældist verðbólga 5,7% í janúar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig aukist og er talin vera ríflega 4%. Þá hafa verðbólguvæntingar á suma mælikvarða hækkað. Hækkun húsnæðisverðs vegur þungt en aðrir innlendir kostnaðarliðir hafa einnig hækkað. Við bætist hækkun alþjóðlegs olíu- og hrávöruverðs. Samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga verði 5,8% á fyrsta fjórðungi ársins og yfir 5% fram eftir þessu ári. Gert er ráð fyrir að verðbólga hjaðni þegar hægir á verðhækkun húsnæðis og alþjóðlegar verðhækkanir fjara út en að hún verði ekki komin að markmiði fyrr en undir lok spátímans.

Peningastefnunefnd ítrekar að hún mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í tilkynningunni.

Vefútsending klukkan 9:30

Klukkan 9:30 hefst vefútsending þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns nefndarinnar og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur bankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu halda kynningu á yfirlýsingu peningastefnunefndar og efni Peningamála.

Síðasta vaxtaákvörðun Seðlabankans var 17. nóvember síðastliðinn og er sú næsta áætluð 4. maí.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×