Þórsarar knúðu fram sigur gegn Kórdrengjum

Snorri Rafn Hallsson skrifar
þórdrengir

Enn og aftur lá leiðin í Nuke þegar sjóðheitir Þórsarar mættu til leiks eftir glæsilegan sigur á Dusty í síðustu umferð. Að sama skapi virðist nokkur stígandi vera með Kórdrengjum sem þó hefur ekki gengið nægilega vel að klára leikina sína almennilega. Þeir sitja því enn á botni deildarinnar á meðan Þórsarar gera atlögu að toppsæti Dusty með hverjum sigri.

Kórdrengir unnu hnífalotuna og hófu leikinn í vörn (Counter-Terrorists) en Þór byrjaði af krafti í sókninni. Luku þeir skammbyssulotunni á örskotsstundu án þess að missa mann og í þeirri næstu komu þeir sprengjunni snyrtilega fyrir og vörðu vel. Erfiðlega gekk fyrir Kórdrengi að fella Þórsara sem framkvæmdu aðgerðir sínar á leifturhraða og af miklu öryggi.

Þreföld fella frá Xeny og fjórföld frá Hyperactive kom í veg fyrir að Þór stingi Kórdrengi af og með árásargjörnum varnarleik tókst Kórdrengjum að jafna í 4–4 og halda aftur af efnahag Þórs.

Skiptust liðin þá á lotum og þegar Þórsarar komust yfir á ný þurftu Kórdrengir að finna aðrar lausnir í vörninni en að mæta framarlega og berjast. Það gekk þó ekki eftir. Voru Kórdrengir nokkuð klaufalegir á köflum og Þór því með yfirhöndina þegar fyrri hálfleik lauk.

Staða í hálfleik: Þór 8 – 7 Kórdrengir

Í síðari hálfleik brugðu Þórsarar sér í hlutverk aðgerðateymis FBI í vörninni. Aftur var skammbyssulotan gallalaus hjá Þórsurum og sú næsta eldsnögg þegar Peterr felldi 4 Kórdrengi hvern á fætur öðrum. Jók Þór þannig forskot sitt og útlitið farið að versna fyrir Kórdrengi.

Kórdrengir gáfu þá í og með hröðum sóknum og frábæru einstaklingsframtaki nokkurra leikmanna tókst þeim að halda ágætlega í við Þórsara. Var framhaldið spennandi þar sem Þór barðist af afli til að halda forskotinu fram í síðustu loturnar. Kórdrengir veittu þeim góða viðspyrnu en Þórsarar höfðu betur að lokum.

Lokastaða: Þór 16 – 13

Með sigrinum heldur Þór öðru sæti deildarinnar en í næstu umferð mætir Þór liðinu sem líklegast er til að ógna þeirri stöðu, Vallea. Leikurinn fer fram föstudaginn 11. febrúar, en þriðjudaginn 8. febrúar tekur botnlið Kórdrengja á móti toppliði Dusty. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira